28.10.10

Islam vs. Christianity

Þegar öllu er á botnin hvolft verður maður að spyrja sig einnar spurningar: Hversu mikið langar mig í beikon?

Dolli fríkar út þegar hann kemst að því að Roy Hodgeson hefur ekki enn verið rekinn!

27.10.10

25.10.10

Kvikmyndasögubútur sem allir verða að sjá # 3

Peter Sellers er án nokkuns vafa einn alfermsti grínleikari sem sést hefur á hvítatjaldinu, hér eru nokkur sýnishorn með þessum snillingi.





18.10.10

Liverpool er brandari

Allavega eins og staðan er í dag, og hérna eru nokkrir brandarar um Liverpool sem hafa verið að ganga.

Hvað eiga börn alcahólista og Liverpool aðdáendur sameiginlegt?
Bæði kvíða helginni : )


Á John Lennon flugvellinum í Liverpool er stytta af John Lennon og á henni er skilti sem grafið er í textabrot Lennons "above us only sky"
Einhver húmoristinn er búinn að skrifa neðan við skiltið "below us only Wolfs" : )


Hvernig fattarðu að þú ert að lesa Moggann á hvolfi?
Liverpool er á toppnum : )


It has been announced that next year’s shirt sponsor for Liverpool will be Tampax. A spokesman for Tampax said “To sponsor a bunch of cunts going through a bloody bad period is exactly what our company is all about!

Happy times : )

6.10.10

Bubbi hættur að semja sama lagið!

Held það bara, ég heyrði í útvarpinu núna áðan "nýtt lag" með Bubba, en eins og allir sem ekki eru staurblindir aðdáendur mannsins vita þá hefur Bubbi gert það helvíti gott með að endursemja sama lagið sitt ansi oft og selja sem nýtt.

Eitthvað fannst mér samt kunnuglegt við þetta "nýja lag" kóngsins, og eftir smá umhugsun fattaði ég að hvar ég hef heyrt þetta lag áður,nefnilega hér:



Að vísu er Bubba útgáfan aðeins hraðari en alveg sláandi lík orginalinum en viðlagið í þessu lagi hér fyrir ofan og viðlagið hjá Kónginum er einfaldlega það sama.

Eflaust er þess ekki lengi að bíða að þetta lag Bubba nái að toppa alla spilun á Rás 2 enda er sá sem öllu ræður þar aðdáandi # 1.

4.10.10

Útskriftarmyndin mín, dagur 3

IT'S A WRAP!!!!!!!!!

Já við náðum að ljúka þessu undir kvöldmatarleitið þrátt fyrir að fara aftur uppí Grafarvog til að taka allt aftur sem við tókum upp þar í gær, það efni var einfaldlega ónothæft vegna myrkurs.

Við byrjuðum kl 09 í morgun og var mæting góð og setti það tóninn fyrir daginn, ég sýndi tökumanninum mínum efnið sem við tókum upp í Grafarvogi seint í gær og viðraði áhyggur mínar með það efni, ekki þurfti neinar sannfæringar til að sjá að við yrðum einfaldlega að láta allt ganga upp til að geta farið aftur og tekið það efni upp aftur.

Ég hringdi í lyftuleiguna og fékk að hafa lyftuna annan dag og sjálfsagt mál var hjá íbúum Vættarborga að fá að taka þar annan daginn í röð. Nú varð að láta hendur standa fram úr ermum í Ölveri til að ná dagsbirtunni seinni partinn, það tókst og eftir stendur að ég er með meiriháttar flott efni til að gera það sem ég er að verða nokkuð viss um að verði skemmtileg mynd.

Sérstakar þakkir fær M5 fyrir að vera vinur í neyð.

Næsta mál er svo að fara á fimmtudaginn til Hafnar í Hornafirði og vera það í 4 daga við tökur á næstu mynd sem bekkurinn gerir, ég get ekki sagt að mér finnist neitt spennandi að eyða 11 - 12 klukkutímum sitjandi í bíl fram og til baka í því verkefni en svona er þetta stundum þegar gera á bíó : )

Nú ætla ég að hella mér uppá kaffi og skála fyrir sjálfum mér í Koníaki fyrir að vera búinn í tökum á myndinni minni : )

Skál!

3.10.10

Útskriftarmyndin mín, dagur 2

Dagur 2 liðinn og gekk allt vel, vorum reyndar lengur að en upphaflega stóð til en því má kenna um að crewið mitt mætti ekki á tilsettum tíma og 2 aðalleikararnir létu svo bíða eftir sér í seinnihlutann sem tekinn var upp í Grafarvogi seinni partinn í dag, þessar óþarfa tafir kostuðu okkur tæpa 2 tíma og mikilvæga dagsbirtu, vona að það komi ekki niður á endanlegri útkomu myndarinnar.

Við byrjuðum á því að taka senurnar með foreldrum aðalhetju myndarinnar hérna heima hjá mér, það gekk eins og áður sagði vel þrátt fyrir að við byrjuðum seinna en við ætluðum.
Eftir það fluttum við svo okkur um set yfir í Grafarvoginn þar sem við tókum upp senuna þar sem aðalhetjan okkar sækir aðaldömuna á deit. Þetta tókum við upp fyrir utan húsið hjá Georg bróður og hans fjölskyldu, þar var tekið vel á móti okkur, hellt uppá kaffi og okkur öllum boðið inn á meðan við biðum eftir aðalleikurunum, höfðingjar heim að sækja og kann ég þeim bestu þakkir fyrir allt í dag.

Við vorum svo búin á níunda tímanum í kvöld og byrjum svo aftur kl 9 í fyrramálið í Ölveri í Glæsibæ.
Þar verður lokahnykkurinn tekinn á morgun og alveg ófyrirsjáanlegt hvenær tökum lýkur á morgun.

Þetta er alveg að hafast, aðeins 1 dagur eftir, og þrátt fyrir að þetta sé gaman og spennandi þá verð ég dauðfeginn þegar ég get öskrað yfir lýðinn í lok dags á morgun........IT'S A WRAP!

2.10.10

Útskriftarmyndin mín, dagur 1

Fyrsti af 3 dögum lokið, og gekk vel.
Við byrjuðum í húsnæði Þykkvabæjar í Garðabæ kl 09 í morgun og kláruðum að ganga frá rétt fyrir kl 19 í kvöld.
Á þeim tíma settist ég ekki niður í svo mikið sem eitt augnablik og er bakið eftir því, samt ekkert sem gott kaffi og enn betra koníak getur ekki lagað : )
Aðeins meiri afslöppun á morgun, byrjum kl 14 og ættum að verða búin milli kl 19 og 20, kemur í ljós.

Ég er mjög ánægður með það sem tekið var upp í dag, þetta lúkkar vel og leikararnir flottir, skrítin tilfinning samt að upplifa söguna mína og pælingar svona ljóslifandi fyrir framan mann, absúrd jafnvel.

Gaman að þessu, þangað til næst.