24.9.10

Törnin hafin. Dagur 2

Var í tökum í Heiðmörk frá kl 19 í gærkveldi til kl 07 í morgun, ekki eins kalt og í fyrrinótt en þá fraus.
Tökur aftur í kvöld í Heiðmörk en líklega eitthvað inní nóttina og ekki fram á morgun........vonandi : )
Er búinn að sofa í c.a. 6 tíma á síðustu 2 sólarhringum, er að fara í bælið núna og ætla að sofa þangað til að ég þarf að sækja börnin á leikskólann í dag, þá er að keyra þau til Hveragerðis þar sem þau verða um helgina enda mamma farin til Belgíu og pabbi að þykjast vera eitthvað sem hann er ekki og er aldrei heima.

Góða "nótt"

Engin ummæli: