30.9.10

Khalid Askri er snillingur

Þessi seinheppni markvörður var heimsfrægur eftir þessa frábæru "björgun"



Hér er hann aftur á ferðinni nokkru síðar.



Spurning hvort Wenger vilji ekki fá hann til Arsenal?

25.9.10

Törnin hafin. Dagur 4

Jæja þá er þessu verkefni lokið og nú er dagur í frí, ekki veitir af því ég er algerlega búinn á því.
Það litla sem ég hef séð af efninu sem tekið var upp er alveg hrikalega flott, svo flott reyndar að ef þessi mynd vinnur ekki til verðlauna í skólanum og jafnvel víðar fyrir myndatöku þá verð ég mjög hissa.
Svo ætti ég auðvitað að vinna fyrir bestan leik líka : )

Það sagði allavega leikstjórinn ; )

P.s
IPhone 4 kemst í mínar hendur á mánudagskvöld : )

Enski. Leikir helgarinnar. 6 umferð

24.9.10

Törnin hafin. Dagur 2

Var í tökum í Heiðmörk frá kl 19 í gærkveldi til kl 07 í morgun, ekki eins kalt og í fyrrinótt en þá fraus.
Tökur aftur í kvöld í Heiðmörk en líklega eitthvað inní nóttina og ekki fram á morgun........vonandi : )
Er búinn að sofa í c.a. 6 tíma á síðustu 2 sólarhringum, er að fara í bælið núna og ætla að sofa þangað til að ég þarf að sækja börnin á leikskólann í dag, þá er að keyra þau til Hveragerðis þar sem þau verða um helgina enda mamma farin til Belgíu og pabbi að þykjast vera eitthvað sem hann er ekki og er aldrei heima.

Góða "nótt"

23.9.10

Törnin hafin.

Jæja nú er mánaðarlög töku törn hafin hjá mér í skólanum.

Við byrjuðum í gærkveldi kl 19 í tökum í Árbæjarsafninu á mynd sem er útskriftarmynd bekkjarbróður míns og ég leik aðalhlutverk í.
Eins og oft er gekk erfiðlega að byrja og töfðust tökur þó nokkuð. Einhvertíma milli 3 og 4 í nótt fórum við svo í Heiðmörk og vorum þar til að verða 8 í morgun.

Byrjum aftir í Heiðmörk kl 19 í kvöld og eru áætluð tökulok um kl 07 í fyrramálið.

Líf og fjör : )

21.9.10

Yndislegt video

Það er auðvitað alveg bannað að hlægja að fólki með Tourette, en ekki þessum : )

15.9.10

Kvikmyndasögubútur sem allir verða að sjá # 2

John Witherspoon í Boomerang.





Og hér er meistarinn í myndinni Friday After Next



Og hér svarar snillingurinn spurningunni, eru sterar að eyðileggja íþróttir?

Kvikmyndasögubútur sem allir verða að sjá

Mér finnst þetta rant Gabby Johnsons alltaf jafn fyndið : )

9.9.10

Aumingja pabbi grand

Eitthvað segir mér að pabbi gamli sé núna að vinna í því að finna íbúð handa stelpunni sinni.