18.5.10
13.5.10
10.5.10
50% rýrnun!
Í gærkveld kom afi konunar í mat til okkar, eins og vanalega þegar hann kemur til okkar í mat þá reyni ég að hafa eitthvað í matinn sem ég held að honum líki en fái kannski ekkert of oft.
Í þetta skiptið varð reykt folaldakjöt fyrir valinu og get ég ekki neitað því að mig drephlakkaði til að borða það sjálfur enda mjög langt síðan að slíkt hnossgæti hafði farið inn fyrir mínar varir.
Ég keypti rúllu af reyktu folaldakjöti í Krónunni, viktin á rúllunni var 1264gr sem ég taldi yfirdrifið nóg fyrir 3 fullorðna og 2 börn með kartöflum og meðlæti.
Rúlluna sauð ég svo eftir leiðbeiningum frá framleiðanda, þegar suðunni var lokið eftir c.a. 90 mín sá ég mér til mikillar furðu og vonbrigða að þessi myndarlega rúlla hafði rýrnað allsvakalega í suðunni, svo mikið að ég fyrir forvitnissakir ákvað að vikta hana.
Og viti menn og konur, rúllan hafði farið úr 1264 grömmun niður í 650 grömm!

Það finnst gömlum kjötverkanda eins og mér svolítið mikil afföll.
Hvað um það, kjötið bragðaðist hinsvegar vel og var etið upp til agna með kartöflum, Ora grænum og uppstú : )

8.5.10
7.5.10
Hamborgaralíki

Ég keypti þennan hamborgarapakka í Bónus um daginn, enda þykir mér 10x110gr hamborgarar á 990kr príðisgóður díll.
100% kjöt stendur á pakkanum, en þegar ég steikti borgarana á pönnuni þá fór allt á flot í vökva sem líktist helst vatni og á endanum urðu borgararnir frekar nasty looking og ógirnilegir.
Það er reyndar tekið fram að í borgurunum sé blanda af svína og nautakjöti en ég vonaði að þeir yrðu samt góðir.
I was wrong : (
Vildi bara deila þessu með ykkur.
6.5.10
Fyrsti golfhringur sumarsins : )
Ég varð þeirrar gleði aðnjótandi að fara með M2 í golf á Hellu í gær, spáin var fín en þó verður að játast að þegar lagt var að stað úr bænum í gærmorgun var útlitið ekkert spes. En eins og nánast alltaf svíkur Strandarvöllur okkur ekki, rjómablíða og léttskýjað, ég náði meira að segja að sólbrenna pínu ; )
Á undan okkur fóru svo 3 manna teymi snillinga þannig að það má segja að Móar hafi hertekið völlinn þarna um morguninn.
Fyrri 9 voru ágætlega spilaðar að minni hálfu, en 3 pör á seinni 9 sáu svo til þess að maður yfirgaf svæðið með bros á vör, sérstaklega var gaman að para 18, held að mér hafi ekki tekist það áður : )
102 högg.
30 punktar.
Þakka M2 kærlega fyrir hringinn enda vandfundnari betri félagsskapur til að spila með : )

1.5.10
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)