26.3.10

Smá mont : )

Í kvöld er árshátíð Kvikmyndaskólanns, venja er að tilnefna það sem vel hefur verið gert á liðnu ári og hefur kosning farið fram á síðustu dögum í skólanum og mun svo verðlaunaafhending fara fram í kvöld á árshátíðinni.
Ég er með 3 tilnefningar að þessu sinni, 2 fyrir kynningarmyndina mína (reykingamyndina) þ.e.a.s. fyrir handrit annarsvegar og klippingu hinsvegar. Svo er ég ásamt öðrum tilnefndur fyrir hljóðvinnslu á pilot þætti sem við gerðum á síðustu önn sem heitir Ruslakallar.

Nú kem ég með þetta klassíska:
Það væri auðvitað gaman að vinna en bara heiðurinn að vera tilnefndur er nóg : )

6 ummæli:

M2 sagði...

Kjaftæði!!
Þú rústar þessu!!!

GO LILLEMAN!

M3 sagði...

og hvernig gékk svo?

M4 sagði...

Veit ekki, fór ekki á árshátíðina.
En þar sem ég neitaði að sofa hjá dómnefndinni (allir í skólanum) þá á ég nú ekki von á miklu ; )

M2 sagði...

þögn?....

Hefðir þú átt að lúlla hjá dómnefndinni?

M4 sagði...

Tja ég veit bara ekki meir, líklega hef ég bara ekkert unnið : (

M4 sagði...

Ég hef semsé fengið að staðfest að ég vann ekkert :(
Og þarna eru fordómar gegn þeim sem ekki nota tóbak í skólanum staðfestir!
: )