Eins og frægt er orðið þá náði M4 að merja sigur á fádæma góðum endaspretti og vann þannig verðlaunin í þriðja sinn.
Glöggt má sjá á þessum myndum að M3 var tregur til að láta af hendi verðlaunin, en með semingi og eftirsjá og kannski ekki síst fyrir mikinn þrýsting frá eiginkonunni lét M3 loksins verðlaunin í hendur sigurvegarans og skundaði M4 ásamt fjölskyldu glaður í bragði heim á leið eftir vel heppað matarboð sem M3 fjölskyldan hafði boðið til.
Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir og hlökkum til að koma aftur til þeirra í vor að endurtaka þetta þegar tímabilinu líkur : )


2 ummæli:
Til hamingju með þetta.
Þú ert barasta að ná upp í kassann.
Ég skal svo koma og hjálpa þér að drekka þetta. Ekki veitir af. :)
Áttu ekki einnþá nokkra bjóra eftir frá þarsíðustu keppni?
Já takk og vertu ævinlega velkominn : )
Uuu nei Stellan frá þar síðustu kláraðist í haust, en ég á nokkra eftir frá þessari afhendingu, enda bara liðinn mánuður : )
Skrifa ummæli