Eftir að hafa á einstaklega hlutlausan hátt skoðað það efni sem sent var inn í keppnina komst ég að þeirri niðurstöðu að mín mynd ætti góðan möguleika á verðlaunum, reyndar sá ég að aðeins 2 myndir gætu mögulega átt sjéns fyrir utan mína.
Hinar myndirnar sem um ræðir eru Mikki í bakarínu, þar sem búið er að textaskreyta hljóð úr Dýrunum Í Hálsaskógi, lúkkar fínt en er mjög lítil kvikmyndagerð að mínu mati.
Hin myndin er myndin Hulduhóll sem skólafélagi minn gerði síðasta vetur, stutt hrollvekja sem er rosalega vel gerð.
En nú er semsagt búið að velja þessar tvær myndir sem unnu til verðlauna og varð Mikki í fyrsta sætinu og Hulduhóll í öðru, ég náði semsagt ekki neinum verðlaunum í þetta skiptið og finnst mér það hundfúlt skal ég alveg játa, en ég get vel ímyndað mér að einhverjir gætu túlkað myndina mína þannig að þar sé hvatt til reykinga, og það gæti hafa haft áhrif.
Svona getur þetta verið : )
En að öðru, núna rétt áðan sá ég í sjónvarpinu Lottó auglýsinguna sem ég lék í um daginn.
Í henni er ég einn af Papparözzunum sem sitja fyrir Lottókúlu #21 sem er leikin af "þokkagyðjunni" Ásdísi Rán.
Varla er hægt að segja að ég sjáist mikið í þessari auglýsingu, mér rétt bregður fyrir í byrjun hennar en varla er hægt að ætlast til að nokkur taki eftir því : )

Hér er auglýsingin í heild sinni:
Já maður er ekkert að ríða feitum hestum þessa dagana : )
En ekki er öll nótt úti, ég bind mklar vonir við jólahryllingsmyndina sem ég var að leika í síðasta föstudag, held að þeð verði flott mynd : )
10 ummæli:
Fúlt!! >:(
Better luck next time.
Ertu með tengil á heimasíðu keppninnar?
Linkur á auglýsinguna etv?
M2
Þú getur þó huggað þig við það að konan þín er að meika það sem starfsmaður mánaðarins ;)
Nei hvorugt M2.
Já elskan mín, það er nú það sem heldur mér gangandi í gegnum þessi vonbrigði : )
Búinn að henda inn mynd af Lottó frægðinni minni : )
Takk M2.
Auglýsingin í heild komin inn líka : )
VVvóóó.... það hefði þurft að "dubba" kerlinguna....... það eina sem ég skildi er að 21 er málið !!! (já, sem var auðvitað tilgangur auglýsingarinar DÖ)
kv. Brói
Já, ljósmyndarinn er flottastur, við vissum það nú alveg. STJARNA
kv.Brói
Sjæse hún er svo falleg..og sexxy.....not : )
Það er bara ein stjarna í þessari augglýsingu og það er ég!
Múhahahaha..........
Stjarna í felum! ;)
Múhahahaha.........Múhahahaha.........Múhahahaha......... það er satt hjá þér You Sexy uuuu.... thing.
kv, Brói
Skrifa ummæli