Maður kemur illa leikinn inná bráðavaktina með glóðarauga á báðum og fimm járn vafið þétt utanum hálsinn. Eðlilega spyr læknirinn manninn hvað hafi eiginlega gerst.
Jú sjáðu til, ég var nú bara að spila golf með konunni þegar hún slæsaði boltanum beint inní hóp af beljum sem stóðu á túninu við hliðina á brautinni, ég fór auðvitað og hjálpaði frúnni að leita að boltanum og eftir stutta leit tók ég eftir því að það glitti í eitthvað hvítt á afturendanum á einni beljunni.
Ég gekk að henni og lyfti upp halanum og viti menn, þarna var golfbolti konunar hálfur inni í rassgatinu á beljukvikindinu.
Og þá gerði ég mikil mistök.
Nú hvað gerðirðu? spurði læknirinn forvitinn.
Nú þar sem ég hélt uppi halanum á beljunni, kallaði ég í konuna mína og sagði henni að þessi væri alveg eins og hennar!
Trelleley!
1 ummæli:
Eheheheeeee..... , góður.
brói
Skrifa ummæli