1.11.09

13ml af bleki á 2500kr

Blek í þessa venjulegu prentara er viðbjóðslega dýrt, ég á Canon bleksprautu prentara sem er þó þeim kosti búinn að nota 5 hylki af lit, sem er auðvitað mjög gott því þegar að einn litur klárast þarf bara að skipta um það eina hylki. Ólíkt prentaranum sem á átti áður, hann notaði aðeins 2 hylki, 1 svart og hitt innihélt litina, og svo þegar einn litur í því hylki kláraðist þá varð maður bara að henda því þrátt fyrir að nóg væri eftir af hinum litunum. Mjög fúllt.
Núna í síðustu viku þurfti ég að prenta nokkrar blaðsíður sem innihéldu ljósmyndir vegna verkefnis í skólanum, þá kemur upp villuboð um að ég geti ekki prentað blöðin vegna þess að blái liturinn sé búinn.
Þar sem mig vantaði prenthylkið strax þá keypt ég hylki á tæpar 3000kr, ég sá svo að ég hefði getað fengið eins hylki á 2500 í Tölvulistanum en það var of seint núna.
Hinnsvegar rifjaðist upp fyrir mér umræða sem ég tók þátt í á Maclantic um einmitt þetta mál, þ.e. fáranlegt verð á blekhylkjum í prentara, 2500kr fyrir 13ml þýðir 170.000kr fyrir literinn!

Í þessu spjalli á Maclantic var einmitt einhver sem benti á þessa furðu og sagðist svo vera búinn að panta sér helling af hylkjum í gegnum þessa síðu
Þessi sami aðili hefur áður notað þessa vöru með góðum árangri og mælti því með hylkjunum, og því ákvað ég að gera slíkt hið sama.
Ég pantaði mér pakka með 4 settum af öllum litunum með kubb (20 hylki, 20 kubbar) sem kostar hingað komið 30 pund.
30 pund X 205kr = 6150kr komið í prentarann minn, það gerir 307 krónur á hylkið, 307 fokkings krónur!

Nú fer ég sko að prenta allan andskotann sem ég vil, já og vil ekki : )

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll,
hvaða síða er þetta brói ?

Kv. Harald

M4 sagði...

inkredible.co.uk

Pakkinn er ekki kominn í hús ennþá enda sendu þeir þetta frá sér þann 28 okt.

M4 sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
M4 sagði...

Editeraði sjálfan mig aðeins.

Smá uppdate.
Hylkin eru komin í hús, komu reyndar á pósthúsið í síðustu viku en ég var að sækja þau núna.
Eftir að hafa greitt tolla, virðisauka og aðflutningsgjöld þá kemur hylkið út á 425kr.
Sweeeet : )