Er orðinn stoltur eigandi Mac Book Pro : )
Virkilega gaman að segja frá því.
26.6.09
25.6.09
M.J. dó í kvöld.
Popp guðinn Michael Jackson lést í kvöld, þetta þykja mér ömurlegar fréttir enda var maðurinn alger snillingur þó umdeildur hafi verið.
Þar sem mínir dyggustu lesendur eru ekki sömu skoðunar og ég þá set ég hér inn magnaða renderingu á hans stæðsta smelli.
GOLIMAR!!!!

18.6.09
20 bestu
Ég var einn af fjölmörgum sem tóku þátt í þessari könnun, og ég held bara að af þessum 20 séu bara 3 sem ég kaus ekki.
Magnað að Sigur Rós eigi 3 plötur á listanum, þó held ég verðskuldað.
Eins má setja Björk með 3 og svo er Egill Ólafs og félagar með 6 stykki!
Bubbi með 2, Gunnar Þórðar með 2, Emilíana Torrini með 2.
Greinilega yfirburðar fólk í geiranum.
20 bestu plötur Íslandssögunnar
1. Ágætis byrjun - Sigur Rós
2. Lifun - Trúbrot
3. Á bleikum náttkjólum - Megas & Spilverk þjóðanna
4. Hinn íslenzki Þursaflokkur - Þursaflokkurinn
5. Sumar á Sýrlandi - Stuðmenn
6. Debut - Björk
7. Gling-Gló - Björk Guðmundsdóttir & Tríó Guðmundar Ingólfssonar
8. Ísbjarnarblús - Bubbi Morthens
9. Með suð í eyrum við spilum endalaust - Sigur Rós
10. Sturla - Spilverk þjóðanna
11. Me and Armini - Emilíana Torrini
12. Hana nú - Vilhjálmur Vilhjálmsson
13. Fisherman´s Woman - Emilíana Torrini
14. Life´s Too Good - Sykurmolarnir
15. Með allt á hreinu - Stuðmenn
16. Einu sinni var - Vísur úr Vísnabókinni - Björgvin Halldórsson og Gunnar Þórðarson
17. Lög unga fólksins - Hrekkjusvín
18. Kona - Bubbi Morthens
19. Mugimama is this monkeymusic - Mugison
20. Takk - Sigur Rós

17.6.09
10.6.09
Frá einum Kíró til annars
Nú eru orðin þó nokkur ár síðan ég fór að fá verki í mjóbakið (eins asnalegt og það nú er að segja að ég sé með mjótt bak).
Þegar óþægindin fóru að aukast var mér bent á að fara til Kírópraktors, það gæti örugglega hjálpað og það gerði það svo sannarlega.
Ég fór til þess manns sem fyrstur fékk starfsleyfi hér á landi, Tryggvi Jónasson heitir hann og til að gera langa sögu stutta þá náði hann að redda mér það vel að ég var eiginlega full hraustur á eftir.
Svo byrjaði verkurinn að koma aftur, og svo snemma á síðasta ári gerðist eitthvað sem tók þessi bakmeiðsli mín á nýtt og verra stig, mikið meiri verkur og þegar verst er þá get ég varla rétt úr mér og hvað þá gengið, missi máttinn í fæturna og fálma út í loftið til að reyna að grípa í eitthvað til að hreinlega hníga ekki niður, ömurlegt helvíti alveg.
Í dag fór ég aftur til Kírópraktors en ekki til þess sama, enda þegar ég fór til Tryggva síðasta sumar náðist eiginlega ekki nokkur bati.
Í dag fór ég til ungs manns sem rekur stofu ásamt öðrum manni, og þar tóku við allskonar mælingar, bólgu skönnun og loks röntgen myndataka.
Að koma í þessa skoðun miðað við þegar ég fór til Tryggva var álíka mikill munur og setja blóðsugur á mann til að berjast við sýkingu og svo að fá Pensilín í pillu formi.
Ekki ætla ég nú að gera lítið úr starfseminni hjá Tryggva, alls ekki enda var hann brautryðjandi fyrir aðra sem á eftir komu, en mig grunar að hann hafi staðnað, henn getur eflaust hjálpað mörgum en svo eru líklega aðrir sem þurfa eitthvað meira.
En eftir þessa skoðun í dag fylltist ég bjartsýni á að mínum vanda yrði reddað, en það á auðvitað eftir að koma í ljós.
Næsta mánudag á ég að mæta aftur og þá verður farið yfir það sem kom út úr mælingunum og meðferð hefst.
Þá er bara að krossa fingur og vona að ég fái ekki í bakið í leiðinni.

3.6.09
Conan : )
Jebb, nú er Jaaaaay Leno hættur og Conan O Brien tekinn við.
Það eru frábærar fréttir, hef aldrei fílað Leno neitt sérstaklega en Conan er alveg hrikalega fyndinn.
Nú var ég að enda við að horfa á fyrsta þáttinn hjá Conan og varð ekki svikinn, aðal gestur kvöldsins var hinn stórkostlegi snillingur Will Ferrell : )
Fyrsti þátturinn var með svolítið öðru sniði eðlilega og verður gaman að sjá næsta þátt þar sem Tom Hanks verður gestur kvöldsins, mikið djöfull byrjar þetta vel.
Það er nokkuð ljóst að ég á eftir að skipta yfir á Skjá Einn í næstu viku til að horfa á Conan.

1.6.09
Ekki meir slæp!
Í dag er síðasti dagur kæruleysis og eiginhagsmuna hjá mér í bili.
Á morgun hef ég vinnu í Mekka og er ætlunin að vera þar sem starfsmaður á lager til loka Ágúst.
Til gamans má geta þess að ég hef áður verið starfsmaður hjá fyrirtæki þessu en síðan eru liðin c.a. 21 ár : )
Hakka til.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)