Eftir að hafa verið í hinum ýmsu verkefnum hjá samnemendum mínum í skólanum þá er komið að því ad sinna mínu eigin lokaverki annarinnar.
Ég ætla að gera tónlistarmyndband.
Ég ætlaði reyndar að vera löngu byrjaður en hljómsveitin sem ég ætlaði upphaflega að gera myndband fyrir fór í einhverskonar innbyrgðis fílu og er komin í "pásu", þetta setti auðvitað strik í reikninginn hjá mér og hefur tafið mig þó nokkuð.
Tónlistarmyndband er enn á dagskránni en nú fyrir dúett, og lagið er cover af Joni Michell laginu Big Yellow Taxi.
Ætlunin er að taka myndbandið upp núna á laugardagskvöld í bílageymslunni hérna hjá mér, ég reikna með að fá cameru, ljós og fl á morgun svo að þetta ætti allt að geta gengið upp..........vonandi : )
3 ummæli:
Hvernig gekk
M7
Þetta gekk bara mjög vel, ég var reddý með allt þegar dúettinn kom, búinn að stilla upp ljósum og gera cameru klára.
Þannig að við gátum byrjar um leið og þau komu, svo voru upptökur búnar rúmlega 12 á miðnætti og ég búinn að ganga frá í bílageimslunni um kl 01 : )
Mjöög gaman : )
snilld
Hvenær fáum við að sjá árangurinn?
M7
Skrifa ummæli