10.2.09

Einhverra hluta vegna.............

.............grunar mig að við eigum eftir að fá margar svipaðar fréttir á næstu árum af snilldarbandinu Buena Vista Social Club.

Tekið af mbl.is

Bassaleikari Buena Vista Social Club látinn

Bassaleikari Buena Vista Social Club, Orlando „Cachaíto" López er látinn 76 ára að aldri. López lést á sjúkrahúsi í Havana á Kúbu. Banamein hans voru fylgikvillar blöðruhálsuppskurðar, að því er segir í frétt á vef BBC.

López lék tvívegis á tónleikum með Buena Vista Social Club á Íslandi, árið 2001 og 2008. Buena Vista Social Club vöktu heimsathygli þegar kvikmynd Wim Wenders um tónlistarhópinn var tekin til sýningar árið 1999. Samnefnd plata kom hins vegar út haustið 1997 og hefur selst í milljónum eintaka um heim allan.

1 ummæli:

M2 sagði...

Já, það er ansi líklegt að þessir kallar hrynji. En jafnframt massívt kúdós fyrir hversu lengi þeir eru búnir að vera að.