16.10.08

Sorg sorg!



Sá hræðilegi atburður átti sér stað á heimili mínu í kvöld að sonur minn ákvað í sakleysi sínu að færa pabba sínum nýju fallegu Liverpool könnuna úr stofunni inn í eldhús þar sem ég var að tala í símann.
Drengurinn hefur væntanlega tekið eftir því að kanna þessi hefur vart vikið úr höndum föður síns síðan að hún var keypt fyrir fáum dögum síðan, en eftir frækilega göngu í gegnum stofuna þá vildi ekki betur til en svo að kannan féll á flísað gólfið í eldhúsinu og brotnaði.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru eflaust nokkrir kjánar þarna úti sem vilja lesa úr þessu einhverja vitleysu eins og t.d. að drengurinn haldi með öðru liði en því eina rétta, en ég sé auðvitað að hið eina rétta er það að hann vonast auðvitað eftir því að þegar pabbinn fer á morgun að kaupa nýja könnu þá verði keyptur búningur eða samfella á hann.
Ég nefnilega klikkaði á því í fyrra skiptið, en núna veit ég betur : )

4 ummæli:

M3 sagði...

Torres meiddur, kannan brotinn, hvað næst?

;-)

Nafnlaus sagði...

Það sem mér finnst ótrúlegt að þú hafir getað haldið stillingu þinni og tekið ljósmynd, maður nánast efast um hollustu þína til klúbbsins. Kom eitthvað teymi í áfallahjálp?

M7

M2 sagði...

:( Þú færð samúð mína alla.

Samt bölvað kæruleysi að sleppa hendi af könnunni!

M4 sagði...

Það gerði ótrúlega hluti fyrir sjálfsstjórnina að það var gestur á heimilinu, annars hefði örugglega liðið yfir mig ; )
Ný kanna keypt á eftir : )
Mun örugglega setja mynd af henni hér inn, spennó : )
Og háttvirtur M3, hvað næst.......kannski tap gegn Wigan?
Takk takk fyrir samúðina kæri M2.