27.10.08

Álfurinn Ólafur.


Ég var eins og eflaust margir nokkuð spenntur fyrir þáttinn hennar Evu Maríu í gær þar sem hún hitti fyrir úber handboltamanninn Ólaf Stefánsson. Ég man eins og flestir eftir einkennilegu viðtali við Ólaf á Olympíuleikunum í Peking, bíip viðtalið svokallaða.
Í því viðtali var hann mjög svo einkennilegur, reyndar fyndinn, svo fyndinn reyndar að ég hélt að hann væri svona djóker enda gekk vel hjá liðinu að allt var í lukkunar velstandi en ég vissi líka að hann væri með hausinn í heimspeki og þetta væri því ekki allt bara djók.
Svo í þessu viðtali í gær mætti maður sem minnti mig á óákveðna gaurinn sem Jón Gnarr fann uppá í Tvíhöfða þáttunum í útvarpinu, hann var svo mikið að pæla að hann gat ekki komið frá sér heilli setningu án þess að slíta hana í sundur með orðum eins og "eða" of fór svo að tala um eitthvað allt annað og sagði svo "eða kannski " og fór svo að tala um enn annan hlut.
Svona fannst mér Ólafur vera í gær, það var t.d. ekki langt liðið á viðtalið þegar sú hugsun skaust í hausinn á mér að hann gæti verði í hljómsveitinni Sigur Rós, sem er auðvitað ekki slæmt.
Ekki það að það hafi ekki verið heilmikið vit í því sem hann var að reyna að segja hann bara kom því svo einkennilega frá sér.
Bííííp.

3 ummæli:

M2 sagði...

Neeei þú ert að mis...
;)

Fín samlíking,

M2 sagði...

http://www.youtube.com/watch?v=K2rGDah5dec

Hehe..næs

M4 sagði...

Nákvæmlega, takk M2.