29.9.08

Allt að fara til Satans!

Fékk þessa skemmtilegu mynd senda áðan.



Það sem mér finnst óþægilegast í þessu öllu er að fyrir viku síðan fullyrti Lárus Welding í Silfri Egils að staða íslensku bankanna væri góð og ítrekaði það með því að segja að sér fyndist gott að sjá hve bankarnir væru í raun vel undirbúnir fyrir þessa erfiðu tíma sem nú eru á fjármálamörkuðum og þeir væru í raun að styrkjast með hverjum degi sem líður!
Er virkilega já?
Eiga svo ekki hinir vel reknu bankarnir eftir að sökkva í kjölfarið á Glitni?
Nei nei, örugglega ekki enda er ekkert vandamál á ferðinni samkvæmt Geira og Árna.

Fífl!

Sagat-Funk dat



Klassík!

25.9.08

Móa Ræderferð til Skotlands 18-23 sept 08

Ég fór ásamt fjélögum mínum í Móavinafjélaginu til Skotlands til að spila golf.
Þessi ferð hefur verið lengi á döfinni en það var svo í vor sem leið að loksins var ákveðið að láta drauminn um að fara til "mekka golfsins" Skotlands.
Tímasetningin var heldur engin tilviljun, á sama tíma og Evrópuúrvalið keppti við USA í Ryder keppninni, héldum við Móar okkar eigin Ræder keppni á Murryshall vellinum í hálöndum Skotlands.
Liðstreyjur voru gerðar og keppnisfyrirkomulag þrautskipulagt.
Spennan í keppninni okkar var mun meira spennandi en í Ryderkeppni Evrópu og USA og þess má svo til gamans geta að heimamenn í Skotlandi höfðu mjög gaman að þessari "litlu" keppni okkar og vöktu liðstreyjur okkar ávallt kátínu meðal heimamanna : )
Úrslit í Ræderkeppni Móavinafélagsins urðu þannig að "Longshanks" mörðu sigur á "Bravehearts" þrátt fyrir hetjulegt "comeback" þeirra bláklæddu eftir gríðargóða byrjum Longshanks.

Hér eru nokkrar myndir, smellið á mynd til að stækka:


Bolagerð Bjarka.


Menn voru misvelupplagðir í byrjun ferðar.


Hótelbarinn, veitið athygli glæsilegu veggfóðrinu.


M3 varði Móameistaratitilinn og hélt því bikarnum áfram.


M3 og M2 góðir með sig.




Steinninn sem gerði tilraun til fótbrots á M5 á fyrsta degi.


M3, M4 og M7.


Á föstudeginum og laugardeginum voru brúðkaup á hótelinu, sekkjapípuleikarann má sjá hægrameginn við blómabeðið.




M6 að pútta.


Hótelið baðað sólargeislum.


M7 og M1 líta um öxl.


M2 og M4 sælir og ánægðir.


Mitt besta högg ferðarinnar endaði c.a meter frá holu á 4 braut sem er 118 metra löng.
Fékk að sjálfsögðu fugl á þessari : )




M5 klikkaði sjaldan á höggi.


Legið til hliðar við 18 holu á lokadegi og horft á fjélagana klára.


Bjór ferðarinnar.

Snilldar ferð í frábærum fjélagsskap, aftur eftir 2 ár.

24.9.08

Bíó: The Hills Have Eyes II (2007)



Framhald af endurgerðri klassík.
Ekki nógu góð.

Einkunn 5/10

23.9.08

Spurningin.

Ég lagði nokkrar spurningar fyrir mannskapinn um daginn, og þessi urðu svörin:

Enski. Leikir helgarinnar #5

17.9.08

Bíó: Meet the Spartans (2008)



Paródía þar sem gert er grín að öðrum myndur eins og myndinni 300.
Virkar alls ekki.

Einkunn 2/10

Eldsneytisverð?

Vil bara benda á að eldsneytisverð á heimsmarkaði hefur lækkað mjög mikið undanfarið og er nú á sama verði og það var í febrúar á þessu ári.
Í febrúar á þessu ári voru þessi verð á sjálfsafgreiðslu dælum Skeljungs:
bensín 137,9
dísil 142,4

í dag er verðið hins vegar:
bensín 165,7
dísil 179,6

Hvað er málið?

16.9.08

Harold & Kumar Escape from Guantanamo Bay (2008)



Aðeins meira af hinum seinheppnu hassreykjandi aulum Harold og Kumar.
Eins og fyrri myndin á þessi ágætis spretti.

Einkunn 6/10

15.9.08

Biz Markie - Just a friend



Ég hafði rosalega gaman að þessu lagi og myndbandinu á sínum tíma........og hef enn :)

Bíó: Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street (2008)



Í leikstjórn hins snjalla Tim Burton leikur Johnny Depp hinn morðóða Sweeney Todd sem myrðir óvini sína í rakarastólnum.
Það skal tekið fram að þessi mynd er söngvamynd, ekki eins og Mamma Mia! heldur mun þyngri og mikið meira sungið.
Og það er þessi endalausi söngur sem eyðilagði svolítið fyrir mér fílinginn, annars er þessi mynd klassískt Tim Burton augna konfekt.

Einkunn 6/10 (hefði getað fengið 8/10 hefði söngurinnn verið skorinn niður um 50%)

14.9.08

4000 innlit!

Bíó: Hancock (2008)



Já já enn ein hetju myndin, en þessi hetja er óvinsæll drykkfelldur sóði.
Mjög frumlegt, en virkar ágætlega.

Einkunn 7/10

13.9.08

Fínasti dagur.

Svona eiga laugardagar að vera, Liverpool vinnur langþráðan sigur á Manure, svo fer maður í skírn og við þá athöfn fléttaðist óvænt brúðkaup, fullt að kræsingum og gúmmilaði, svo kemur maður heim, kemur krökkunum í rúmið og fer svo fram og blandar Irish Coffie handa okkur skötuhjúum : )
Er hægt að hafa það betra?

Bíó: Harold & Kumar Go to White Castle (2004)



Líklega nútíma útgáfa af Cheech And Chong nema bara að þeir voru fyndnari.
Á samt ágætis spretti.

Einkunn 6/10

12.9.08

Golfhringur # 14

Í morgum mættum við M5 galvaskir til leiks á Hlíðavöll í Mosó í ágætis veðri, ringdi öðru hvoru og bætti heldur í vindinn þegar líða tók á.
Spilamennskan svipuð og áður sumt gott en flest slæmt : )
Ef mínir hæfileikar til punktareiknings svíkja mig ekki þá var ég með 27 stykki.

Enski. Leikir helgarinnar #4



M4. 5 réttir
M3. 2 réttir

Hvað vita þeir?

Hvernig stendur á því að þegar ég fæ ruslpóst þá er alltaf verið að bjóða mér vörur sem hafa alltaf sama tilgang, að lengja á mér tittlinginn?
Ég meina er einhver orðrómur í gangi?

11.9.08

Bíó: Eastern Promises (2007)



Í leikstjórn hins mjög sérstaka David Cronenberg.
Í aðal eru Viggo Mortensen og Naomi Watts.

Fínasta mynd sem óhætt er að mæla með.

Einkunn 8/10

Vika í Skotland!

10.9.08

Rólegt

Ekkert að gerast, skítaveður ekkert golf.
Hangi bara á facebook.com
Kve sorglegt er nú það?

7.9.08

Ný könnun !

Endilega svara frá hjartanu : )

6.9.08

Golfhringur # 14

Í dag fór ég á Korpúlfsstaðavöll ásamt M1, Sigga mági hans og M5.
Veðrið var mjög íslenskt, sól og skúrir til skiptis en sem betur fer þó meira af sól : )
Við Siggi kepptum við M1 og M5 og töpuðum naumlega ; )
Ég var með 15 punkta eftir fyrri 9 og endaði á 24 punktum.
Forgjöfin komin í 28 : (

4.9.08

Golfhringur # 13

Skellti mér á Kálfatjarnarvöll með tengdó í dag, verðrið var fínt og spilamennskan prýðileg fyrri níu (17punktar) en eitthvað klikkaði svo á 11. 13. og 14 holu og náði nokkrum punktum á síðustu fjórar holurnar.
Uppskera dagsins 28 punktar.



Sjálfsmynd tekinn í gær á Hlíðavelli í Mosó.

Yeeeesss!

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/04/hringvegurinn_faerdur_nordar_fra_selfossi/

Loksins að menn eru að átta sig á þessu : )

3.9.08

Golfhringur # 12

Í dag skellti ég mér sóló á Hlíðavöll í Mosó (áttu enga vini, spurði konan í afgreiðslunni í klúbbnum).
Sagt er að stöðugleiki sé eftirsóknarverður fyrir golfspilara og þannig var það hjá mér í dag, bara ekki rétti stöðugleikinn.
Stöðugt rugl var uppskrift dagsins og ég elska uppskriftir.
Held að ég sé að fara í golf með tengdó á morgun, skýrslan frá því fyrlgir fljótlega.

Sólskin tryggt!

Með kaupum á regnjakka og regnbuxum á útsölu Nevada Bob í dag tel ég að ég sé búinn að tryggja okkur Skotlandsförum sól og blíðu.
Ef ekki þá má rigna mín vegna : )