Félagarnir Casper og Frank sem fara á kostum í þáttunum Klovn á Rúv voru í viðtali í Kastljósinu í gærkveld.
Ég skemmti mér alveg helling við að hlusta á þessa félaga tala um sjálfa sig og þættina og veru þeirra á Íslandi, gaman að sjá að þeir eru ekkert að leika í þáttunum, þeir eru bara svona : )
Annars fannst mér æðislegt að vita til þess að þeir eru að byrja á sinni sjöttu seríu um Trúðinn.
Svolítið svona eins og að uppgötva fjársjóð.
2 ummæli:
Argh!!
Missti af þessu.
Þá neyðist maður líklega til að glápa á netinu.
M2
Viðtalið í sjálfu sér ekkert svo merkilegt, þeir eru bara svo fyndnir : )
Skrifa ummæli