30.4.07

Lítið að gerast !

Ég fór til læknis aftur í morgun og verður gerð önnur og ítarlegri blóðrannsókn sem ætlast er til að staðfesti fyrri skoðun, svar fæst úr þessari á miðvikudag.
Annars eru litlar framfarir, nema þær að í morgun tókst mér í fyrsta sinn síðan að mælingar hófust að vera undir 38 í morgunmælingu og er það auðvitað jákvætt, en mig grunar nú samt að þessi vika fari í þessi leiðindi þó ég voni nú ekki, enda alveg komið nóg takk.
Reyndar sagði læknirinn mér að ég gæti alveg búist við að vera orkulítill í marga mánuði eftir að hitinn hættir, hann sagði að menn væru oft í a.m.k. 6 mánuði að ná fullum styrk eftir þetta helvíti !
Það er greinilegt að hann þekkir mig ekki vel : )

25.4.07

Enn veikur !

Það er lítið að gerast í þessu hjá mér, ég er enn með talsverðan hita og ligg ýmist í rúminu eða sófanum.
Ég fór í blóðrannsókn í gærmorgun og í henni kom í ljós að ég er líklega með Einkyrningssótt og er ekkert við henni að gera nema slaka á og leifa henni að hafa sinn gang, en hún er þekkt fyrir að leggja jafnvel hörðustu menn eins og mig í 4 vikur, stundum meira !

Gaman gaman.

Ég á tíma hjá lækninum aftur á mánudagsmorgun ef að ég verð ekki orðinn hress og verður þá gerð önnur blóðrannsókn.

Lifið heil.

19.4.07

Viva Las Vegas

Já it´s alive, með naumindum þó : )

Það er búið að vera mjög gaman í ferðinni þrátt fyrir þessi helvítis veikindi sem eru búin að lita ferðina verulega hjá mér, gáfulegast hefði verið að sætta sig strax við komuna hingað að bara liggja og slaka á í einn eða tvo daga og ná þessu helvíti úr sér en neeei, maður bara étur pillurnar sínar og frestar hinu óumflýanlega.
Hvað, maður getur bara legið í bælinu þegar að heim er komið : )
Veðrið er búið að vera mjög gott, hlýtt og svolítill vindur sem hefur hentað mér ágætlega.
Ferðalagið hingað tók ágætlega í mann, 14 klt eftir að lagt var að stað vorum við kominn uppá herbergi algerlega búinn á því.
Þökk sé öryggis eftirliti kanans hurfu þessir þrír tímar sem voru á milli fluga hjá okkur í að standa í biðröð og bíða þess að tekin séu fingraför og myndir og svara spurningum eins og :
Ert þú núna eða hefur þú verið í hryðjuverkasamtökum ?
Ert þú núna eða hefur þú einhverntíma verið starfandi sem njósnari ?

Gaman að þessu : )

Jæja best að leggja sig aðeins : )
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á símann í gönguferð okkar skötuhjúa (ógift ennþá sko)
Já og gleðilegt sumar !

Smella á mynd til að stækka !












14.4.07

Þá er komið að því !

Jæja loksins loksins er komið að því, ferðin til Las Vegas hefst í dag : )
Ég skal strax játa að mig kvíðir svolítið fyrir ferðalaginu sjálfu þar sem ég er ekki alveg heill heilsu en með hjálp góðra lyfja er þetta allt á réttri braut.
Ekki að ég vilji vera að nudda eitthvað, enda er það mjööög fjarri mínum karakter, þá set ég hér upp veðurspá næstu daga annarsvegar í Vegas og hinsvegar hér í Reykjavík : )
Góðar stundir.

Ps.
Ég mun að sjálfsögðu reyna að vera duglegur að blogga frá ferðalagi kartöfludrengsins og kannski með einhverjum myndum og solleiðis.


12.4.07

Veikur !

Já er þetta ekki týbíst, er búinn að liggja með 38,5 í dag og er að fara til Vegas eftir 2 daga.
Góðu fréttirnar eru samt þær að þegar ég skrifa þetta þá líður mér talsvert betur og er bjartsýnn á að verð orðinn góður á laugardaginn.
Ekki að það skipti svo sem öllu því að ég fer þó að ég þurfi að fara með sjúkraflugi !

9.4.07

5 dagar i Vegas !


Og svona er spáin fyrir þessa viku og stefnir í að vikan sem að við verðum úti verði svipuð eða betri : )
He he he......Viva Las Vegas !

3.4.07

Ræktin

Eftir 12 tíma vinnudag er ég að hugsa um að skella mér í ræktina í annað sinn í dag (fór í hádeginu) og horfa á PSV - Liverpool í beinni á Sýn.
Það mætti halda að maður sé í einhverskonar ofurformi, en svo er reyndar ekki þó svo að forminu verður líklega náð einmitt með svona hegðun.
90+ mín á brettinu á röskri göngu er málið í kveld : )
KOMA SVO LIVERPOOL !!!!!