30.3.07

Bíó-The Pursuit of Happyness (2006)


Í aðalhlutverkum:
Will Smith, Jaden Smith, Thandie Newton, Brian Howe, James Karen, Dan Castellaneta.
Myndin fjallar um Chris Gardner (Smith) sem er búinn að vera seinheppinn í svolítinn tíma og er búinn að safna upp skuldum.
Hann og sambíliskona hans (Newton) eru að missa tökin á fjölskyldulífinu og neyðast til að vinna mikið fyrir léleg laun á meðan að sonur þeirra er í umsjá konu sem lætur börnin horfa á lélega sápu sjónvarpsþætti.
Þessi mynd á að vera byggð á sannri sögu en hversu nákvæmlega veit ég ekki.
Will Smith var tilnefndur til Óskars verðlaunanna fyrir frammistöðuna en fékk ekki (Forrest Wittaker vann)
Já það má einnig geta þess að sonur Will's og leikkonunar Jada Picket Smith leikur son hans í myndinni.

Ég er ekki Will Smith aðdáandi en hann stóð sig með prýði í þessu hlutverki.
Fyrirfram átti ég von á tilfinningavellu ala Hollywood en ég reyndist að mestu leiti tilfinningasljór yfir myndinni þó ágæt sé.

Einkunn: 7/10

Out with the old, in with the new !

Fór áðan og keypti þennann 500 GB flakkara í BT á 19.900 kr.

Og er honum ætlað að leysa þessa gömlu af, hún hefur staðið vaktina sleytulaust í 9 ár með miklum sóma.

En sú gamla á sér örugglega framhaldslíf, kannski í barnaherberginu sem afþreyingarstöð, kannski ?
Jæja þá er bara að dæla á milli : )

Birgir Leifur


Ég hef eins og líklega margir golf áhugamenn verið að fylgjst með gengi Birgis Leifs á Evrópsku mótaröðinni undanfarið.
Hann hefur verið að standa sig framar mínum vonum en eitthvað er hann að hikksta núna á opna Portúgalska mótinu, reyndar hafa nánast allir verið að spila illa, en hann samt næstum því verst.
En þá er bara að bæta sig !
Læt hér fylgja með mynd sem ég tók af mbl.is rétt áðan þar sem fjallað er um gengi Birgis.
Eins og glöggt má sjá í textanum með myndinni er blaðamaðurinn eitthvað að misskilja stöðuna því að efsti maður þegar að þetta er skrifað er með -3 þannig að því miður er okkar maður ekki með -8 heldur +8 !
En á mbl.is er auðvitað ekki mikið verið að lesa yfir textann áður hann er opinberaður.

29.3.07

Kominn í dópið !

Rétt í þessu var ég að koma frá lækni, sem notaði tækifærið og skoðaði fagurskapaðan líkama minn hátt og lágt.
Niðurstaða þeirrar skoðunar er sú að ég sé með stíflaðar ennisholur og það útskýrir þyngslin í heddinu, sem sagt fullur af HORI !
Ekkert sem nokkrar pillur geta ekki lagað samt !

28.3.07

Bíó: Johnny Dangerously (1984)


Ein frá því í gamla daga.
Aðalhlutverk:
Michael Keaton, Joe Piscopo, Marilu Henner, Peter Boyle, Griffin Dunne, Dom DeLuise, Danny DeVito.
Myndin var nokkuð vinsæl á sínum tima og man ég vel eftir henni því mér þótti hún vera fyndin.
Húmorinn er svolítið ýktur, í svipuðum dúr og Mel Brooks myndir eru.
Allavega, myndin eldist alveg sæmilega, auðvitað er allt öðruvísi húmor í dag en það voru þó nokkur atriði sem maður gat haft gaman að.
Sérstaklega eru það nokkrar persónur sem voru skemmtilegar, eins og gaurinn sem Joe Piscopo leikur en hann er mikill glæpon sem á svakalega skammbyssu sem skýtur í gegnum hluti sem fórnarlambið skýlir sér á bak við svo fer kúlan í gegnum fórnarlambið og þaðan í gegnum vegginn og í gegnum næsta tré og svo í gegnum skóla...........

Einkun 6/10

Í gamla daga hefði ég gefið þessari mynd 9/10

27.3.07

Djöfull í helvíti !

Fór til vinnu í morgun, svona bærilega sáttur við heilsufarið, en komst fljótt að því að það er ekki það sama að sitja heima og horfa á bíómyndir eða sitja fyrir framan tölvuna og að vera í vinnunni að reyna að gera gagn.
Er sem sagt kominn heim aftur og verð að reyna að ná þessu helvíti úr mér almennilega áður en ég fer að vinna.
Það kemur sér vel að ég hef alltaf verið góður í því að finna mér eitthvað til dundurs, því nú reynir á : )

26.3.07

Bíó: The Sentinel (2006)


Í aðalhlutverkum:
Michael Douglas, Kiefer Sutherland, Eva Longoria.

Myndin fjallar um Pete Garrison (Douglas) sem er gömul hetja innan CIA og starfar í öryggisþjónustu forsetans.
Þegar að CIA kemst að því að það eigi að drepa forsetann þá er ýmislegt sem bendir til þess að Pete Garrison sé viðriðinn málið.
En svo kemur í ljós að hann er bara riðinn, og þá aðallega forsetafrúnni : )
Alltílæ mynd sem verður aldrei spennandi þrátt fyrir að minna svolítið á þættina 24, kannski er það bara vegna Kiefer Sutherland, ég veit ekki.

Einkun 6/10

Síðasti dagur í flensu !


Djöfull er ég ekki að nenna þessu lengur, er búinn að liggja (tja reyndar ekki svo mikið liggjandi þannig sko...) í þessu flensu ógeði síðan á fimmtudagsmorgun.
Er sem sagt heima í dag og ætla að vinna á morgun þó svo að það sé ekki nema rétt svo að maður meiki það.
Þá er bara að horfa á einhverjar skemmtilegar bíómyndir (nóg af þeim til : ) og reyna að hafa það gott í dag.
Já svo er þetta síðasta vinnu vika fyrir páska, gaman að því.

25.3.07

20 dagar í Vegas !


Í dag eru aðeins 20 dagar í ferðina okkar hjónaleysa til Las Vegas !
Þetta er hótelið sem við verðum á http://luxor.com/
Ég er búinn að vera skoða ferðir til Grand Canyon og verð ég að segja að það er líklegt að splæst verði í flottan túr þangað enda á sá staður sér ekki hliðstæðu í veröldinni og ólíklegt að maður fái möguleika á að fara þangað aftur þó svo að maður viti auðvitað aldrei.
Svo er ég búinn að vera að skoða möguleikann á að sjá einhverjar spennandi sýningar í Vegas og það er svo sem margt í boði en það sem mér finnst mest spennandi eru tónleikar með Celine Dion, nei nei auðvitað ekki, mest spennandi er mögnuð sýning sirkusins stórmerkilega Cirque du Soleil á MGM Grand hótelinu.
Allavega er maður að vera mjög spenntur !

Bíó: Casino Royale (2006)


James Bond í túlkun Daniel Craig er án nokkurs vafa flottasti bondin, grófur og eitursvalur.
Hinn Danski Mads Mikkelsen leikur vonda kallinn Le Chiffre og er flottur.
Aðalgellan er leikin af Evu Green en hún leikur hina kynþokkafullu Vesper Lynd og stendur sig vel enda góð leikkona og freistandi mjög........fyrir Bond sko.....
Besta Bond mynd líklega ever !

Einkun: 8/10

Bíó: Jack Ass 2 (2006)


Ég skal alveg játa það strax að ég er fyrir löngu búinn að missa áhugan á svona efni eins og því sem er í boði í þessari mynd og svona "Strákarnir" þáttum.
En mikið djöfull gat ég hlegið af þessu rugli þrátt fyrir að vera með flensu !
Það eru nokkur atriði sem standa uppúr en ég hélt að ég myndi gubba af hlátri yfir atriðinu sem sést á veggspjaldinu sem fylgir færslunni, annars er myndin í heild er bara svo helvíti skemmtileg.

Einkun: 8/10

21.3.07

Hjálp !

Eftir ígrundaða innri skoðun og og lífsgæðamat hjá sjálfum mér, er ég farinn að hallast að þeirri skoðun að ég ætti mögulega að kjósa sjálfs æðis flokkinn !
Og ef ég á alveg að vera hreinskilinn þá líður mér hálf skringilega með þessa niðurstöðu, svona eins og það hafi einhver kúkað uppí mig.
Og er það ekki alveg týbíst ég að fara að hallast að þeim þegar að allt lítur út fyrir að þeir hröklist loksins frá völdum.
Æji...ég veit ekki, er ekki einhver gáfaðari en ég til í að redda mér og leiðrétta þessa vitleysu í mér, ég held að ég sé að missa tökin á skynseminni

Bíó: Blood Diamond (2006)


Djimon Hounsou var tilnefndur til Óskars fyrir frammistöðuna en fékk ekki.
Ágætis mynd en náði mér ekki alveg.
Einkun: 7/10

Sorrý

Já ég veit að ég er búinn að vera slappur að skrifa, en ég hef bara í sambland verið bissý og andlaus.
En þetta er fyndið stuff !
http://movies.apple.com/movies/us/apple/getamac/apple-getamac-tech-support_480x376.mov
P.s.
Hér á þessu blogger drasli er fídus sem gerir svona tengla snyrtilega, en það virkar auðvitað ekki !
Helvítis drasl !