18.1.07

Innbrota alda !

Nú er innbrotaalda í Reykjavík auglýsir eitt af öryggisfyrirtækjum landsins og bæta svo við, ert þú með öryggiskerfi á þínu heimili?
Persónulega finnst mér svona hræðslu áróður óþolandi, þó svo að ég hafi lent í því að brotist hafi verið inn hjá mér fyrir nokkrum árum þá er ég ekki viss um að ég myndi fá mér öryggiskerfi á mitt heimili.
Mín reynsla er nefnilega sú að t.d. í vinnunni minni kemur öðruhvoru fyrir að "kerfið" fer í gang, t.d. þegar að skúringar fólkið gleymir sér og fer inn á svæði þar sem kerfið hefur verið sett á, og viðbragð öryggisfyrirtækissins sem á að vakta minn vinnustað er alveg handónýtt og bregst oftast ekki við fyrr en svo seint að sæmilega sprækir þjófar gætu hæglega hreinsað staðinn.
Fussumsvei !

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já ég les þetta enn, en ef ég man rétt þá var miklu meiri Marxista bragur á skrifum þínum áður fyrr. Nú er bara verið að ræða um mannanafna nefnd, securitas og stöku hryllingsmyndir.

óþekktur aðdáandi

M4 sagði...

Nei heyrðu nú "óþekki aðdáandi" !
Það er alþekkt staðreynd að þeir sem ekki kunna að skrifa nafnið sitt hafa ekki rétt til kjaftbrúks !

Nafnlaus sagði...

ok, nafnið er che7, che1 biður þig um að gvaka í moleið

che5

Nafnlaus sagði...

rum vid ad talamum ad thu sert buinad runkather ti olifis....