
La Marche de l'empereur, er myndin sem vann Óskarinn sem bezta heimildamyndin.
Hún fjallar um lífsbaráttu Keisaramörgæsa sem að með fáránlegum dugnaði og seiglu eru að berjast við óblíða náttúru í þeim göfuga tilgangi að koma upp afkvæmi.
Þessi mynd er rosalega góð og vel gerð og snertir mann á stöðum sem að vissi ekki að heimildamynd gæti snert mann ( ekki líkamlega sko )
Það er alger óþarfi að vera hrædd(ur) við að taka þessa mynd á leigu því að hún toppar flestar myndir sem eru á leigunni !
Einkunn 9/10
Satan.
2 ummæli:
fórst þú út á videoleigu?
M7
!!!!!! Ég !!!!!!! Útá videoleigu !!!!
Hvurslags spurning er þetta eiginlega ?
Skrifa ummæli