24.2.06

Innrásin Frá Mars


Ég fór í gærkveld ásamt konunni í Háskólabíó á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og valinkunnra tónlistarmanna sem fluttu tónverk Jeff Wayne " War Of The Worlds"
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Sögumaður: Jóhann Sigurðarson
Einsöngvarar: Margrét Eir, Jón Jósep Snæbjörnsson, Matthías Matthíasson og Friðrik Ómar Hjörleifsson.
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson:
Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson

Það verður að segjast alveg eins og er að þessi flutningur var alveg magnaður, og þar sem við sátum nánast alveg upp við sviðið sá maður mjög vel sögumanninn Jóhann og söngvarana alla og svo mændi maður upp á bíótjaldið á myndirnar sem þangað var varpað úr bíóvélinni en þessar myndir eru einmitt úr bæklingnum sem fylgdi plötunni og eru listaverk í sjálfu sér sem hjálpa manni að sjá fyrir sér það sem er að gerast í sögunni.
Og svo þegar að herlegheitunum lauk langaði mig mest til að fela mig einhverstaðar og sjá líka seinni flutningin en honum hafði verið bætt við þegar að seldist upp á þá fyrri, en það seldist líka upp á seinni tónleikanna.

Allavega, þetta var hrein snilld og mun seint gleymast.


Satan.

21.2.06

Man Usa


Man Usa menn geta nú glaðst yfir því að geta tekið þátt í Meistaradeildinni : )


Satan.

19.2.06

LFC vs. Manure


Jebbs mínir menn áttu ekki í teljandi vandræðum með drengina frá Mykjubæ í Enska bikarnum í gær.
Það var hinn feyki misjafni Pétur Klof sem setti hann í netið á 19. min eins og sést á myndinni.

Gaman Gaman.
Ég fullyrði að við munum dragast á móti Chel$ea einhverstaðar í þessari bikarkeppni !

Satan.

16.2.06

Væri maður rikur maður


Djöfulsins svaka bisness er í því að framleiða Danska fánann þessa dagana !
Spurning um að rigga upp í hvelli fabrikku í Pakistan og byrja að græða monninga, þetta er rakið dæmi, fánarnir þurfa ekki einu sinni að vera vandaðir, bara eitthvað nógu helvíti ódýrt efni sem brennur ekki alltof hratt !

Vááá hvað maður myndi græða !


Satan.

14.2.06

Aðvaranir Bandaríska hersins : ) # 9

Þessa ráð gefur bandaríski herinn hermönnum sínum :

"Do not draw fire; it irritates the people around you."
Your comrades.


Satan.

Dauði og djöfull !

Ég hef ekkert að segja þannig að ég ætla bara að vitna í gamalt máltæki :
Það er betra að vera bara með lokaðan munninn og vera álitinn heimskur en að opna hann og taka af allann vafa !

Satan.

7.2.06

D.L.H.


Þessi stelpa á afmæli í dag og er eins árs : )
Og ég á hana !


Satan.

Til Hamingju Ísland


Silvía Nótt er langflottust og hún mun rúlla svakalega yfir þetta úrslitakveld 18 febrúar !
Svo að ég kvóti nú í drottninguna sjálfa :
já halló er'etta ísland......til hamingju með að vera búin að vinna Eurovision skiluru...sjáumst !


Satan.

Skíta drasl !

Það verður að segjast alveg eins og er að ég er að gefast upp á blogger.com drasli.
Hér er alltof oft helvítis vesen að koma póstunum upp vegna vesens hjá þeim sem reka síðuna.
Ég er til dæmis búinn að þurfa að hætta við 2 pósta vegna þess að því sem virðist að þeir voru of langir, þó svo að ég hafi oft áður skrifað lengri pósta, en núna gengur það bara ekki.
Gott dæmi er þessi Söngvakeppni sjónvarpsins póstur sem ég neiddist til að skera niður í þrjá hluta til að geta birt þá en ég nenni þessu varla lengur því að ég veit ekki hvar limitið er, t.d. gæti þessi póstur núna verið kominn yfir mörkin !

Þetta er auðvitað bara óþolandi helvíti !


Satan.

3.2.06

Landshluta útvarp

Í þessari viku hef ég hitt á að heyra hluta af dægurmála útvarpi rásar 2 þar sem "fréttaritari norðurlands" er með sinn bút í þættinum.
Þrisvar sinnum í þessari viku hefur umfjöllunarefnið verið pylsur, fyrst var tekið viðtal við hinn rosa spes agureyríska pylsusala sem selur hákarl í pylsubásnum sínum ! Vá svaka spes !
Svo var verið að kanna hvot samhengi væri á milli pylsusölu og hraðaksturs á agureyri og eftir miklar pælingar var lögreglustjórinn spurður og hann sagði þvert nei, var greinilega ekki í stuði fyrir svona bjánalegar pælingar.
Svo í dag var stúlkan úr eyjafirðinum að taka saman hvað fólk borðar að meðaltali margar pylsur á viku !
Annaðhvort er þessi agureyríska mær með pylsufettish á háu stigi eða pabbi hennar á pylsuvagninn !

Jæja bezt að fara að grilla pylsur !

Satan.

Handbolta helvíti !

Enn einu sinni sannast það að maður á ekki að vara að eyða tíma í að spenna sig upp vegna íslenska landsliðsins í handbolta !
En alltaf lætur maður sökkast í það að halda að núna loksins verðum við laaaang beztir og svo kemur "slæmi kaflinn" alræmdi og við sitjum eftir með harpix túpuna í borunni !
Djöfull nenni ég ekki að fylgjast með þessu helvíti, það er alveg nóg að horfa á fótbolta !


Satan.