13.11.05

Þreyttir og ferskir





Sjónvarpsefni er misgott og það sem manni finnst velheppnað eldist svo misvel.
Dæmi um sjónvarpsþætti sem ég var "húkkt" á en er ekki lengur er : Alias, E.R. og Survivor enda eru þessir þættir fyrir löngu búnir að fara hringinn í söguþræði og eru orðnir lapþunnir (ég veit að það er enginn söguþráður í Survivor).
Svo eru það þættirnir sem eldast vel, eins og : Simpsons, That 70´s show, og King of Queens.
Nú svo eru það þættirnir sem að aldrei urðu neitt hjá mér : Örninn= fáránlega yfirhæpaður þáttur um bjánalegan löggukall ættaðan úr Vestmannaeyjum, Kalla kaffi = gvuð minn rassskellandi hverzu lélegt er þetta bara !
Svo nenni ég ekki að eyða orðum á Spaugstofuna !

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Að mínum dómi er Örnin eitt af því fáa sem hægt er að horfa á, kannski sem betur fer.
Amerískt sjónvarpsefni er fyrir sama liðið og hlustar á bylgjuna, og ég ætla ekki einusinni að segja...........

peace
M7

M4 sagði...

Örninn er rusl !