
Í aðal eru : Steve Carell, Catherine Keener, Paul Rudd, Romany Malco, Seth Rogen.
Leikarinn Steve Carell (f.1963) sló óvænt í gegn í myndinni Bruce Almighty þar sem hann stal nánast senunni frá Jim Carrey.
Síðan þá hefur hann leikið í : The Office þáttunum sem voru endurgerðir fyrir USA, Anchorman: The Legend of Ron Burgundy (2004), Melinda and Melinda eftir Woody Allen og í myndinni Bewitched.
Og núna er hann að leika eða að fara að leika í a.m.k 6 myndum sem væntanlegar eru 2006 - 2007
Þannig að hann er í góðum málum.
En 40 ára hreinsveinninn fjallar um Andy sem vinnur í raftækjaverslun og nýtur þar félagskapar nokkurra hressandi félaga, sem gera allt sem þeir geta til að redda kallinum þegar að það uppgötvast að Andy er "ónelgdur".
Þrátt fyrir að vera formúlumynd þá er hún helv... vel heppnuð og fyndinn.
Einkunn 7/10
Satan.
1 ummæli:
Anytime my friend !
Skrifa ummæli