31.10.04

Opin Dagskrá

Það hefur verið opin dagskrá hjá Norðurljósastöðvum um helgina og ég hélt að ég hefði himinn höndum tekið...hvílíkur hvalreki á mínar fjörur !
En nei, aldeilis ekki ! Það er ekkert upptakandi af þessu "fíneríi" sem þarna er í boði !
Djöfulsins helvítis drasl !



Satan.

Vinsæll !

Enn og aftur er ég að fá sms eða eitthvað álíka sem örugglega var ekki ætlað mér !
Í gær kom þetta sms " hvernig var í afmælinu ? Kv. pabbi"
Pabbi minn á níræðis aldri er lítið í því að senda sms skilaboð þannig hann er ekki sekur !



Satan.

Faxe Amber

Það er búið að vera í spilun á útvarpsstöðvum auglýsing þar sem er verið að kynna Faxe Amber bjór.
Endinn á auglýsingunni er svona "Faxe Amber...bragðið kemur virkilega á óvart"
Þá fór ég að pæla....vill maður virkilega að bragðið komi manni á óvart ?
Það kæmi mér til dæmis mjög á óvart ef að bragðið væri eins og þegar að maður fær í munninn nábít !
Það kæmi mér líka mjög á óvart ef að bjórinn bragðaðist líkt og niðurgangur !
Ég veit það ekki.......en ég hallast nú frekar að því að láta bragðið koma mér alls ekki á óvart !


Satan.

22.10.04

Antichrist

Lars Von Trier er minn maður, hann er að fara að gera mynd um mig !


Satan.

14.10.04

Mikilmennskubrjálæði !

Rosalega væri frábært ef að það væri hægt að senda alla íslensku þjóðina til sálfræðings, í það minnsta fótboltaáhugafólkið, það er alveg á hreinu að við yrðum greind með mikilmennskubrjálæði og samkvæmt Durex könnuninni er þjóðin líka með alvarlega brókarsótt og jafnvel líka hjálpartækja fíklar !
Hvernig stendur á því að við höldum alltaf að við séum jafnokar eða jafnvel betri en margar stórþjóðir í fótbolta ?
Ók, við öðru hvoru slysumst til að gera jafntefli gegn þjóðum sem eru talsvert hærra skrifaðar en við, og stundum jafnvel náum við að sigra okkur betri þjóð, og þá gerist það...bingó.....við sannfærumst um að við séum ranglega skráð á heimsstyrkleikalistanum þar sem við erum núna í 88. sæti. Og það er einmitt málið, # 88 við erum bara alls ekki betri en það ! Ég vil að Eiður Smári sæki um ríkisborgararétt annars staðar, hjá landi þar sem hann getur spilað með sambærilegum talentum. Hann yrði flottur í framlínunni með Rooney t.d. Ég mundi allavega eiga auðvelt með að skilja hann ef að hann gerði það.
Við munum aldrei komast á HM og og ennþá síður á EM ! Eini sjénsinn til að komast á EM væri ef að við myndum lenda í riðli með : Lichtenstein, Færeyjum, Möltu, Grænlandi, og Luxemburg en það getur aldrei gerst, og þó svo að það gæti gerst yrðum við samt í basli með að komast áfram úr þessum riðli !
Hvernig datt nokkrum heilvita manni það í hug að sama lið og klóraði í jafntefli við Möltu gæti unnið Svía ?
Við töpuðum einfaldlega fyrir Svíum vegna þess að við erum mörgum þrepum neðar í fæðukeðjunni en þeir !
Það eru örugglega til einhver góð geðlyf við mikilmennskubrjálæði, setjum Actavis í málið !


Satan.

Íssósa ?

Ég var að hlusta á Bylgjuna í dag, á þáttin Reykjavík síðdegis, svo eftir eitt auglýsinga hléið kom kynningar trailer fyrir þáttin sem hljómaði svona : Reykjavík síðdegis er í boði Ingvars Helgasonar....Ingvar Helgason þar sem þú færð íssósu !!!!!
HA ! gaspraði ég uppúr mér algerlega í forundran !!!! Svo eftir smá umhugsun þá fattaði ég að auðvitað var auglýsingin svona : Reykjavík síðdegis er í boði Ingvars Helgasonar....Ingvar Helgason þar sem þú færð IZUZU !!!! He he he....mí sóóó stupid !!!


Satan.

12.10.04

Loksins !

Er loksins búinn að settla málin við Sjóvá og eru þeir búnir að greiða bæturnar.
Fyrir utan eitt atriði er allt eins og ég var að vonast eftir, þetta eina atriði er það að bætur vegna DVD og CD skulu bættar með inneign í Skífunni....sem mér finnst fáranlegt en mér tókst þó að lækka inneignina þar úr 177.000 í 100.000 og eru 77 þúsundin greidd með monningum.
Strax skárra en samt asnalegt !


Satan.

10.10.04

Látið mig í friði......ég er manneskja !

Furðuleg símasamskipti sem ég hef verið í undanfarna daga, á sunnudagsmorgun fyrir viku siðan hringdi síminn kl 9:30 ca. í Ég svara tiltölulega ný vaknaður með þessu vanalega halló.......
hæ...segir þýð kvennmannsrödd á hinum endanum,
hæ svara ég á móti.....
hvað segiru...spyr hún...
ég segi bara gott...en þú ?
bara fínt, svarar hún....
varstu að vakna spyr ég ?
já......var ég ekki örugglega að vekja þig ? spyr daman...
jú jú svara ég....
heyrðu.....ég er nú ekki gáfaðri en það að ég gleymdi veskinu mínu hjá þér þarna í gær.....segir röddin hálf skömmustulega.
nú, segi ég.....ertu viss um það ?
já, alveg viss svarar hún.
Hvar helduru......ég sé það ekki hér segi ég....
ég man ekki alveg svarar hún.....
jaa.....það er ekki hér hjá mér...segi ég...
er það ekki spyr hún...
nei.....enda varst þú ekki hjá mér í gær, segi ég...
smá þögn....
hvað meinaru ? spyr daman og er ekki alveg að fatta húmorinn hjá mér....
þú ert að hringja í vitlaust númer, segi ég...
HA ! hrópar daman upp yfir sig...
já, segi ég og fer að hlæja....
GUÐ MINN ALMÁTTUGUR....fyrirgefðu....ég trúi þessu ekki....dísus.....
ég get varla svarað vegna hláturs....
fyrirgefðu...ítrekar daman og dauðskammast sín...
ekkert mál segi ég hlæjandi...
konan leggur á, og ég fer hlæjandi að útskýra fyrir minni hvað gekk á.


Nú síðan á miðvikudagsmorgunn kl rúmlega 7 fæ ég sms, þegar að ég ætla svo að lesa það sé ég að það er tilkynning frá Símanum gsm um að ég hafi fengi mms skilaboð, og þar sem gsm síminn minn gúdderar ekki slík skilaboð þá geti ég farið inná "siminn.is/mms" og með tilgefnu lykilnúmeri geti ég skoðað skilaboðin.
Það geri ég svo þegar að ég kem heim frá vinnu síðar sama dag, og það var nákvæmlega svona :

Var ad koma heim get ekki hugsad mer ad mæta i vinnu, er búin ad hugsa
og hugsa og gráta i alla nòtt nidurstadan er ad þér sè alveg sama um mig
og ad þù myndir aldrei koma svona fram vid mig ef þú elskadir mig 
takk fyrir allt en ekki halda ad eg geti bara gleymt þér :,(

Með þessu fylgdi svo sjálfsmynd að konu sem leit svo sannarlega út fyrir að vera ósofin og útgrátin.

Þetta fannst mér frekar óþægileg og krípý skilaboð og biðst undan fleiri slíkum í framtíðinn.
Fleiri svona hringingar eða skilaboð munu verða til þess að konan mín leyfir mér alls ekki að fara út á lífið í náinni framtíð, þannig að.....látið mig í friði......


Satan.

5.10.04

Yoko Ono

Samkvæmt fréttum dagsins hefur ekkja erkibítilsins John Lennon viðrað hugmyndir um að koma fyrir hér í Reykjavík nokkura metra hárri súlu sem ætti að vera tákn friðar sem sagt " friðasrsúla". Ekki veit ég hvernig gamla hasshausnum Yoko datt í hug að planta þessari friðarsúlu hér á landi þar sem ráðamenn okkar gúdderuðu Íraksstríðið.
En ef að af verður þá finnst mér alveg rakið að um framkvæmdina sjái súlu kóngurinn sjálfur Geiri er kenndur er við Maxim´s og Goldfinger, og svo að hin Litháenska listdansmær Lydia sjái um að vígja súluna.


Satan.

4.10.04

Slæmur tími

Eftir að hafa horft á Ensku mörkin á Skjá einum þá fór ég að velta fyrir mér setningu sem hefur verið notuð af spark spekingum lengi, hún er " markið kom á slæmum tíma " Hvaða helvítis bull er það eiginlega ! Hefur einhverntíma komið góður tími til að fá á sig mark ? Ég hef aldrei heyrt nokkurn þjálfara eða fótboltamann tala um að markið eða mörkin sem þeir fengu á sig hafi komið á frábærum tíma !
Þetta er einfalt, sama hvað íþróttafréttamenn tala um, það er ALLTAF vont að fá á sig mark !


Satan.