21.7.04

31 regla fyrir sanna karlmenn

1.) Það er í lagi að gráta við eftirfarandi aðstæður.
- Þegar að hundur deyr hetjudauða við að bjarga húsbónda sínum.
- Þegar að Angelina Jolie byrjar að hneppa frá blússuni sinni.
- Þegar að þú hefur klesst bíl vinnuveitanda þíns.
- Þegar að 1 klukkutími, 12 mínútur, 37 sekúndur eru búnar af The Crying Game.

2.) Hver karlmaður sem kemur með myndavél í steggjapartý skal drepinn og jafnvel étinn af vinum sínum.

3.) Ef að þú hefur þekkt annan karlmann í meira en 24 klst, er systir hans " off limits " nema að þú giftist henni.

4.) Að væla útaf tegund bjórs sem þér er boðið (frítt) en algerlega bannað, en ef að bjórinn er volgur máttu kvarta......mikið.

5.) Aldrei skal ætlast til að karlmaður kaupi afmælisgjöf fyrir annan mann, og reyndar er alveg spurning hvort að það teljist yfirhöfuð karlmannlegt að muna eftir afmælisdegi vinar.

6.) Í bílferð er það sá með stæðstu blöðruna sem ákveður hvenær skuli taka pissustopp, ekki sá með minnstu blöðruna !

7.) Þegar komið er að öðrum körlum að horfa á fótboltaleik, mátt þú spyrja hver staðan sé, en aldrei hverjir séu að spila !

8.) Það er í lagi að drekka kældan ávaxtadrykk þegar þú ert í sólbaði á suðrænni sólarströnd.....ef að hann var frír og að það var berbrjósta súpermódel sem færði þér hann.

9.) Undir alls engum aðstæðum má sparka í punginn á öðrum manni.

10.) Nema að þú sért í fangelsi, aldrei að slást nakinn !

11.) Sannir vinir leyfa vinum sínum alls ekki að ganga í Speedo....ALDREI !

12.) Ef að buxnaklaufin er niðri hjá öðrum manni er það hans vandamál, þú sást ekkert.

13.) Konur sem halda því fram að þær "elski að horfa á íþróttir" skulu höndlaðar sem njósnarar þangað til að þær hafi sannað þekkingu sína á sportinu, og geti drukkið eins mikið og hinir þeir sem á sportið horfa.

14.) Hver maður sem er í kompanýi með glæsilegri konu skal vera nógu edrú til að geta slegist.

15.) Aldrei skal hika við að taka síðasta bjórinn eða síðustu pizzu slæsuna, en samt ekki bæði...það er bara kvikindislegt.

16.) Ef þú hrósar karlmanni fyrir "glæsilegan six pack" er eins gott að þú sért að tala um bjórkippuna hans !

17.) Nokkran setningar sem má alls ekki segja við annan karlmann sem er að lyfta lóðum :
- Já elskan, taka á því !
- Kommon gefðu mér eina enn, steeerkur !
- Eina lyftu í viðbót og þá skellum við okkur í sturtu saman !

18.) Aldrei að eiga lengra samtal í síma við konu en samsvarar þeim tíma sem samfarir við hana myndu taka, hafðu skeiðklukku við höndina...og ekki hika við að skella á hana verði tíminn of langur !

19.) Þegar að þú vaknar eftir að hafa stundað villt mök við konu sem hafði lengi verið "bara vinkona" og þér líður frekar illa með þessa skrítnu stöðu sem er kominn upp hjá ykkur, ekki hika við að negla hana aftur, áður en að þið farið að ræða hversu mikil mistök þetta hafi verið.

20.) Það er engin ástæða til að horfa á "listdans karla á skautum" eða "fimleika karla". ALDREI !

21.) Lámarkstími sem þú verður að bíða eftir vini sem er seinn er 5 mín. Ef að þú ert að bíða eftir stelpu er lámarks bið 10 mín fyrir hvert stig sem hún nær á gellu einkunnagjöfinni 1-10.

22.) Sannur vinur verður að samþykkja að tala við ljótu vinkonu gellunar sem vinur þinn er að reyna við, ef að þú gleymir þér í góðverkinu og sefur hjá dýrinu, skal vinur þinn aldrei tala um það....ekki einu sinni í steggjapartýinu þínu.

23.) Áður en að þú ferð að reyna við fyrrverandi gellu vinar þíns, skalt þú spyrja hann um leyfi fyrst, og er honum þá skyld að veita það.

24.) Alþjóða regla um laun sem vinir eiga að fá fyrir að hjálpa þér að flytja er bjór.

25.) Karlmaður má aldrei eiga kött, eða líka við kött kærustunar sinnar.

26.) Þegar að kærasta þín eða kona segir þér að hana langi að koma leiðinlegri vinkonu sinni saman við vin þinn, mátt þú samþykkja það, en aðeins ef að þú nærð að vara hann við, svo að hann nái að upphugsa útskýringar á því að hann ætli að gerast kaþólskur prestur.

27.) Ef að vinur þinn er að lenda í slagsmálum við marga menn, ber þér skylda til að hjálpa honum. Eina undantekningin er að ef að hann hefur komið svo illa fram við þig á síðasta sólarhring að þú hafir hugsað með þér "hann á skilið að verða laminn" þá máttu halla þér aftur og horfa á.

28.) Ef að vinur þinn er að syngja með lagi í bílnum, mátt þú ekki syngja líka, það er bara hommalegt.

29.) Undir engum kringumstæðum skulu tveir karlmenn vera undir sömu regnhlífinni !

30.) Áður en þú leyfir drukknum vini að halda framhjá konunni sinni verður þú að reyna að stoppa hann einu sinni. Ef að hann getur horft í augun á þér og sagt "drullaðu þér " ert þú laus undan skyldum þínum.

31.) ALDREI að slá annan karlmann í andlitið eða á rassin með flötum lófa !

Að efast um þessar reglur mun samstundis vekja upp spurningar um karlmennsku þína.


Satan.

Engin ummæli: