30.6.04

Saddam Hussain

GOOD NEWS...

Saddam Hussain is facing the death penalty.

BAD NEWS...

Beckham is going to take it!!

Satan.

29.6.04

EM

Ég átti ekki von á því að fá fráhvarfs einkenni eftir að hafa verið EM laus í 2 daga, en svona er nú samt komið fyrir mér.
Sem betur fer hefst gleðin aftur á morgun.
Vona að Tékkar vinni mótið, áfram Baros !

Satan.

Fjöður í hattinn....

Fær M7 fyrir stór fína kosninga-spark vöku. Svo er hann líka svona helv.... góður kokkur !
Ég legg til að hann verði líka með kosningavöku þegar að kosið verður um fjölmiðlafrumvarpið, einfaldlega útaf því að M7 er scnilli.

Satan.

Úff !

Hvað maður er hugmyndalaus um hvað skuli skrifa um.........en að blogga er víst líka að hafa ekkert að segja.
Og þannig er nú bara það.

Satan

16.6.04

Skjaldarmerki....

Er búinn að vera að horfa á EM í Portugal eins og allir alvöru karlmenn gera þessa dagana. Og ég, eins mikill hugsuður og ég nú er, fór að pæla í því hversu merkin eða landslógóin sem knattspyrnu landsliðin bera á treyunum eru flott ( mjög karlmannleg pæling...ætti kannski að vera stílisti ) ég meina, skoðið svo viðurstyggðina sem Íslenska landsliðið er með hjá sér....KSÍ lógó með alveg ömurlega hallærislegum fótbolta svífandi yfir því !!!! http://ksi.is/ Ekki nema von að við getum ekkert.....við áttum aldrey séns !!
Mín tillaga er sú að við látum knattspyrnu fólkið okkar og jafnvel aðra íþróttamenn og konur bera skjaldarmerki okkar á búningum sínum, eins og t.d Englendingar gera með 3 ljón í sínu merki, Frakkar eru með sperrtan hana í sínu og Þjóðverjar eru með sitt skjaldarmerki á sínum búningum og Hollendingar líklega með tréklossa og túlipana í sínu......mjög kúl.
Reddum þessu nú sem fyrst.....eða eins og gáfaður maður saggði : Reynum allavega að lúkka eins og að við getum eitthvað ! Eða eitthvað svoleiðis.....

Satan.

7.6.04

Ekki á morgun heldur hinn.....

Fór í bíó í gær, að sjá The day after tomorrow....sem er svo sem sæmileg, flottar brellur en þá er það líka upptalið. En af hverju í andskotanum, þegar að það er hálftómur salur....þarf alltaf einhver fáviti að setjast beint fyrir framan mann ?
Djöfulsins fífl !

Satan.

5.6.04

Hægri réttur !!!!!

Af hverju í helvítinu er hægri réttur notaður hér ! Hvílík endemis vitleysa það er, stór hluti fólks í umferðinni veit ekki einu sinni hvernig hann virkar ! Burtu með ruglið og potum niður biðskyldu merkjum í staðinn....for the children.....

Satan.

Jools Holland

Mikið svakalega er ég ánægður með að RUV hafa verið með scnillinginn Jools Holland á dagskrá á föstudagskveldum, þættir þessir "Later With Jools Holland" eru svakalega góðir enda tónlistar flóran tekin fyrir í heild sinni. Scnillingar eins og Radiohead, Lou Reed, Nick Cave, The Thrills, Moloko, Yeah Yeah Yeahs, Grandaddy, Ibrahim Ferrer og margir fleiri góðir. Og vonandi mun RUV sýna næstu seríu með kallinum því að þar verða svo nokkrir c u nefndir : The Coral, Jane's Addiction, Bebel Gilberto, Texas, Starsailor, Buddy Guy, R.E.M. Og hananú !

Satan.

1.6.04

Snilldar helgi

Ný liðin hvítasunnuhelgi var helber gæði í gegn, vinur vor M3 kom til landsins og hittumst við allir Móar ( nema M2 sem dissaði samkomuna fyrir auman " matarklúbb" vei honum...fussum svei ) heima hjá M5 sem eldaði gæðafæði hand oss, sem að sjálfsögðu var skolað niður með guðaveigum. Seint um nótt fórum við í bæinn svona rétt til að komast inn á einhverja búlluna áður en að lokun skemmtistaðanna yrði framkvæmd guði til dýrðar !
Á hvítasunnudag fór ég að spila golf ( ef að það er hægt að kalla mína spilamennsku golf ) ásamt M3,M5,M7. Með okkur röllti svo M2 sem var fullur iðrunar eftir að hafa Júdasað okkur kvöldið áður. Frábært veður í Grafarholtinu var svo bara forsmekkurinn að því sem á eftir kom, því að loknum 18 holum fór svo hópurinn í mat til M2 og frúar ( M2 enn að bæta fyrir svikin: ) Þar var grillaður kjúlli eins og M2 einn getur með tilheyrandi flottheitum og öli. Vorum það til tja......einhverstaðar ca 3-4 um nóttina ( drukkinn sko ) og þannig lauk þeim dýrðar degi. Mánudagurinn var svo rólegur og ljúfur, og mikið er gott að þetta verður stutt vika. Það eina góða sem þetta jesú bull hefur nokkurn tima gert gott, eru allir þessir frídagar.....Halleljúúúúga !

Satan.