25.2.10

Sönn sakamál?

Árið 1983 kom út bíómyndin Christine í leikstjórn John's Carpender.
Myndin fjallaði um bíl af gerðinni Plymouth Fury 1958 módel sem er haldinn illum anda.
Bíllinn tekur öll völd af eiganda sínum og byrjar að drepa fólk með ýmsum aðferðum, hljómar kunnuglega ekki satt?

Í ljósi frétta undanfarið af hrakförum fólks sem ekur um á Toyota bílum, verður maður að spyrja sig hvort P.Samúelsson eða hvað svo sem Toyota umboðið heitir í dag, ætti ekki að ráða prest eða bara einhverja púkafælu í fullt starf við að setja vígt vatn á rúðupissið eða föndra krossa sem svo mega hanga í baksýnisspeglinum?

Eitthvað verður að gera, þetta er ekki eðlilegt ástand!

22.2.10

Emiliana Torrini

Við skötuhjú skelltum okkur á tónleika með Emiliönu Torrini á laugardagkvöldið var í Háskólabíói.
Til að gera meira úr kvöldinu fórum við og snæddum á Saffran fyrir tónleikana, rosa góður matur og ekki dýr : )

Tónleikarnir áttu að hefjast kl 20, sem þeir svosem gerðu með upphitunar atriði, Argentínsk gella sem var með flotta tónlist spilaði í c.a. 30-40 mín.
Svo kom smá hlé og þá kom annað upphitunar atriði, einhver renglulegur strákur sem hafði stolið röddinni hana Anthony sem kendur er við The Johnsons söng þá nokkur lög sem voru ekkert spes.
Eftir það var tilkynnt að nú yrði 20 mín hlé!
Ég skal alveg játa að ég var að verða frekar pirraður þegar Emma litla steig svo loksins á svið 1 1/2 klt eftir að maður var sestur niður : )
Hún og bandið hennar voru alveg frábær og hafði ég sérstaklega gaman að því að fylgjast með Bogo Font á trommunum : )
Frábær skemmtun : )




Svo var planið að fara beint og sjá lokamyndina eftir bók Stieg Larson, Loftkastalinn Sem Hrundi en vegna þess hversu tónleikarnir höfði dregist á langinn gekk það ekki upp, en síðasta syning á myndinni hófst kl 11.

Annars frábært kvöld : )

8.2.10

Stellu verðlaunin 3

Loksins loksins hafa borist myndir frá þessari tilfinningaþrungnu afhendingu Stellu verðlaunanna!
Eins og frægt er orðið þá náði M4 að merja sigur á fádæma góðum endaspretti og vann þannig verðlaunin í þriðja sinn.
Glöggt má sjá á þessum myndum að M3 var tregur til að láta af hendi verðlaunin, en með semingi og eftirsjá og kannski ekki síst fyrir mikinn þrýsting frá eiginkonunni lét M3 loksins verðlaunin í hendur sigurvegarans og skundaði M4 ásamt fjölskyldu glaður í bragði heim á leið eftir vel heppað matarboð sem M3 fjölskyldan hafði boðið til.

Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir og hlökkum til að koma aftur til þeirra í vor að endurtaka þetta þegar tímabilinu líkur : )




7.2.10

Neiiiiiiiii



Þá er ljóst að maður kýs ekki Vinstri Græna.