23.4.09

Ég er svín!

Já samkvæmt Kínversku stjörnuspekinni er ég svín, en hvernig lýsir spekin sú svíninu?

SVÍNIÐ:

Af öllum börnum Guðs hef ég hreinast hjarta.

Með sakleysi og trygglyndi geng ég í verndandi ljósi kærleikans.

Með því að gefa rausnarlega af sjálfu mér verð ég ríkari og tvisvar blessað.

Tengd öllu mannkyni með almennri vináttu er velvild mín altæk og þekkir engin takmörk.

Ég er svínið.

22.4.09

Gamla stórveldið komið með það sem þarf?

Smellið á myndina til að stækka.

21.4.09

Á maður að trúa þessu?

Smellið á myndina til að stækka.

9.4.09

Lokaverkefnið mitt.

Eftir að hafa verið í hinum ýmsu verkefnum hjá samnemendum mínum í skólanum þá er komið að því ad sinna mínu eigin lokaverki annarinnar.
Ég ætla að gera tónlistarmyndband.
Ég ætlaði reyndar að vera löngu byrjaður en hljómsveitin sem ég ætlaði upphaflega að gera myndband fyrir fór í einhverskonar innbyrgðis fílu og er komin í "pásu", þetta setti auðvitað strik í reikninginn hjá mér og hefur tafið mig þó nokkuð.
Tónlistarmyndband er enn á dagskránni en nú fyrir dúett, og lagið er cover af Joni Michell laginu Big Yellow Taxi.
Ætlunin er að taka myndbandið upp núna á laugardagskvöld í bílageymslunni hérna hjá mér, ég reikna með að fá cameru, ljós og fl á morgun svo að þetta ætti allt að geta gengið upp..........vonandi : )