29.2.08

Spurningin.

Veitið athygli spurningunni hér til hægri(jegre) og endilega svarið.
Og munið að ég tek þetta mjög alvarlega ; )

28.2.08

Bíó: Planet terror (2007)

Seinni myndin í samvinnu þeirra Tarantinos og Rodriquez.
Rodriques leikstýrir þessari subbulegu mynd sem fjallar um hóp fólks sem lendir í bobba þegar eiturefnaslys veldur stökkbreytingu á íbúum bæjarins.
Ekki síðri mynd en Death Proof Tarantinos.
Einkunn: 8/10

Nauðgunardómur

Í gær var karlmaður á fertugsaldri dæmdur fyrir að nauðga 14 ára stúlku sem hafði verið að passa börnin hans tvö á meðan hann var að skemmta sér, þegar hann kom heim um nóttina drukkinn nauðgaði hann svo stúlkunni.
Ömurlegt ekki satt?
Fyrr í vikunni féll dómur þar sem maður var dæmdur til að greiða skaðabætur til annars manns vegna ummæla á bloggi, refsingin í því máli var skaðabætur sem nema 300.000 kr auk sakakostnaðar.
Maðurinn sam nauðgaði barnapíunni sinni var dæmdur til að greiða henni 750.000 kr í skaðabætur og 1.000.000 kr í málskostnað!
Er furða að almenningur hefur enga trú á dómskerfinu lengur?

Rauðhærðir styðja Friðrik Ómar!

Já mitt í þessu kjánalega "stríði" Friðriks Ómars og Merzeds Club kemur svona svakalega skemmtileg frétt í Fréttablaðinu um að rauðhærðir styðji Friðrik.
Eru til landssamtök rauðhærðra?
Eða eru þetta meira svona eins og hverfasamtök?
Hvað um það, það getur ekki verið annað en gott að hafa þennan stuðning.
Hver skyldi hárlitur Gilzeneggers vera, hann er nú svolítið rauðbirkinn á hörund?

26.2.08

Stjörnuspá dagsins

Stjörnuspá
Naut: Það er erfitt að standast þig núna - enda vill það enginn! Það er svo gefandi að beygja sig undir þig. Ef þú lætur í ljós aðdáun á einhverjum, verður svarað í sömu mynt.

25.2.08

Píanósjéní

Þetta er alger snilld !

23.2.08

Hrikalegt fótbrot!

Eduardo Da Silva leikmaður Arsenal varð fyrir fólskulegri árás á í leik Arsenal og Birmingham núna áðan.
Í fréttum Rúv kl.16 sagði íþróttafréttamaðurinn að samkvæmt fréttamyndum væri næstum öruggt að Da Silva væri fótbrotinn ! No shit Sherlock !



Þetta er óþolandi!

Djöfull er óþolandi að sjá póstana svona án línubila og allt í belg og biðu!

Eurovision í kvöld!

Er ég Eurovision fan ?
Líklega, en ég veit að þetta er hallærislegt stuff, mér er bara alveg sama.
Í kvöld kemur í ljós hvert okkar framlag til Söngvakeppni sjónvarpsstöðva verður þetta árið.
8 lög keppa til úrslita í kvöld en í raun eru þau bara tvö sem eiga sjéns.

Ho, ho, ho, we say hey, hey, hey
Flytjandi: Merzedes Club
Höfundur: Barði Jóhannsson

Og

Fullkomið líf(this is my life)
Flytjandi: Eurobandið
Höfundur: Örlygur Smári

Þangað til í gær var ég algerlega viss um sigur Ho Ho Ho, en þá heyrði ég nýja útgáfu af laginu Fullkomið líf.
Nú er lagið komið með enskan texta og orðið dansvænt mjög og að auki er búið að taka út hræðilega kaflann þar sem Regína setur sig í leðurblökustellingu og rembist þar til hátíðni skrækur heyrist, það er nefnilega svolítið merkilegt að lögin skuli geta verið í "þróun" alveg til lokakvölds, aðstandendur lagsins hafa gert sér grein fyrir því að lagið sem þau eru að keppa við er einmitt lagið Ho Ho Ho og þess vegna er best að einbeita sé bara að því.

Hvað um það, ég er enn á því að Ho Ho Ho We, Say Hey Hey Hey vinni í kvöld, að því gefnu að flutningurinn verði betri en síðast.
Friðrik Ómar og Regína munu ekki klikka á sínum flutningi og þess vegna munu ósviðsvanir meðlimir Merzedes Club verða undir mikilli pressu : /

Persónulega er mér alveg sama hvort lagið vinnur, þau eru bæði fín á sinn hátt.

22.2.08

Pókerfeis !


Ég veit ekki hvað skal segja með þennan kjána, það virðist bara herja skaðræðis vitmunaflensa á íslenska stjórnmálamenn þessa dagana.

20.2.08

Liverpool 2 - 0 Inter Milan


Eins og mér var réttilega bent á eftir leikinn í gær þá er ekki ástæða til að skæla eftir þennan leik, ólíkt leikjunum að undanförnu : )
Milan átti einfaldlega ekki sjéns í þennan leik frá upphafi og alls ekki eftir að kunta heimsknattspyrnunar Marco Materazzi var rekinn af velli seint í fyrri hálfleik.

19.2.08

Trúður

Félagarnir Casper og Frank sem fara á kostum í þáttunum Klovn á Rúv voru í viðtali í Kastljósinu í gærkveld.
Ég skemmti mér alveg helling við að hlusta á þessa félaga tala um sjálfa sig og þættina og veru þeirra á Íslandi, gaman að sjá að þeir eru ekkert að leika í þáttunum, þeir eru bara svona : )
Annars fannst mér æðislegt að vita til þess að þeir eru að byrja á sinni sjöttu seríu um Trúðinn.
Svolítið svona eins og að uppgötva fjársjóð.

18.2.08

Klár boxari !

Að skíta eða ekki......

Í dag er frétt á fotbolti.net um að “Simon Davey stjóri Barnsley hafi verið viss um að hans menn gætu unnið Liverpool í FA Cup á laugardag eftir að mávur skeit á hausinn á honum í skrúðgöngu fyrir leikinn í miðborginni.” Þetta er kannski eitthvað sem Poolarar geta tekið sér til fyrirmyndar... þ.e.a.s. í stað þess að vera fullir af ranghugmyndum um getu sins liðs, “með höfuðið fullt af skít” ættu þeir að láta skíta á höfuðið á sér og sjá hvort þeim gangi ekki eitthvað betur. Sakar ekki að reyna……

Gaman að þessu : )

16.2.08

Úff !


Vá hvað ég er að verða þreyttur á þessu blessaða Liverpool liði !
Tapa núna fyrir Barnsley og eiga svo útileik á þriðjudag gegn Inter Milan sem hafa ekki tapað leik í háa herrans tíð.
Úff úff úffff.....

15.2.08

Útrýming Downs ?

Sífellt fleiri fóstrum sem greinast með Downs-heilkenni er eytt. Aðeins tvö af 27 fóstrum sem greindust með heilkennið á fimm ára tímabili fengu að fæðast.

„Ég upplifi þessa þróun sem árás á barnið mitt og þá sem eru með Downs-heilkenni,“ segir Katrín Snjólaugsdóttir, móðir Ívars Hrafns, ellefu ára gamals drengs með Downs-heilkennið.

Sigurður Guðmundsson landlæknir segir að þegar öllu sé á botninn hvolft byggist það á foreldrunum sjálfum hvaða ákvörðun sé tekin þegar fósturgalli greinist. Þar skipti mestu máli að þeir séu ekki beittir þrýstingi um að halda fóstrinu eða láta eyða því.


Tekið af dv.is

Mér finnst þetta mjög sorgleg þróun, ætla þó ekki að dæma nokkurn.

Humm...get ekki gert línubil ?

Hvur andskotinn er nú að gerast ?
Afhverju kemur ekki línubil ?
Kann einhver svar við þessu ?
Þessi póstur ætti að vera í fjórum línum !
FOOOOOKKKK!

Svekktar baunir !

Fyndið hvað gamlir kúgarar eru hörundssárir :)


Sænska húsgagagnakeðjan IKEA níðist á Dönum í nafngiftum sínum á húsgögnum og húsbúnaði, að því er segir í frétt Nyhedsavisen í dag. Þar er bent á að fallegustu húsgögnin, svo sem leðursófasett og hægindastólar, séu mjög gjarnan nefnd eftir sænskum bæjum og falleg rúm fái norsk bæjarnöfn. Gólfmottur, smáteppi og gólfefni hjá IKEA heiti hins vegar dönskum nöfnum.

Blaðamaður Nyhedsavisen segist hafa farið ítarlega yfir nafngiftir í IKEA bæklingnum og komist að því að IKEA geri í því að níðast á Dönum með þessum hætti.

Hann bendir í þessu sambandi á leðursófann Stockholm, hægindastólinn Karlstad og borðstofuskenk sem heitir eftir sænska bænum Torsby. Norðmönnum sé líka sómi sýndur með því að láta falleg rúm heita eftir bæjarnöfnum eins og Tromsö og Hemnes.

Óæðri söluvörurnar hjá IKEA fá dönsk bæjarnöfn, eins og gólfmotturnar Köge og Sindal, teppi sem heiti m.a. Bröndby, Nästved, Helsingör og Roskilde. Botninum sé þó náð með því að kalla gólfundirlag Nivå.

“Það er of mikil regla í þessu til að það geti verið tilvljun,” er haft eftir Klaus Kjøller, lektor í samskiptafræðum við Kaupmannahafnarháskóla. “Þetta getur aðeins verið stríðni gagnvart Dönum,” segir hann og kannski njóti Svíar þess að fótumtroða gömlu herraþjóðina. “Kannski er lítil klíka í nafnagiftadeildinni hjá þeim, sem ástundar hryðjuverk gegn Danmörku.”

Þess er getið í lok fréttarinnar að önnur af tveimur klósettsetum IKEA heitir Öresund, eftir sundinu milli landanna. Sagt er að tveir Svíar sjái um öll vöruheitin og þess sé gætt að þau megi ekki vera stuðandi í því 31 landi sem IKEA er með verslanir í.

Lausleg athugun á vörulistanum leiðir í ljós að nokkur nöfn gætu verið íslenskrar ættar: Blómavasinn Pryda, Orgel lampinn, Hulda, sem er púði og motta, Isdans rúllugardínan og svo stólsessurnar Norna, Ingolf og Lenda.


Ég tók þetta af eyjan.is

11.2.08

IPhone blogg !

Jæja, hèr er fyrsta IPhone færslan à blogginu mínu : )
Hvìlíkir dyrdartìmar sem madur lifir à!

9.2.08

Yfir 1000 innlit !

Sko !
Var að skríða yfir 1000 innlit á þessari síðu og setti ég þó ekki upp teljara fyrr en 31 ágúst síðastliðinn.
Það þýðir að rúmlega 6 ip tölur tengjast síðunni daglega að meðaltali að minni meðtalinni, sem er ekki slæmt fyrir blogg sem hefur verið haldið frá öllum nema nánustu vinum.
Á ég þá svona góða vini ?

Skál !

7.2.08

Hún á afmæli í dag..............

Í dag eru liðin 3. ár frá fæðingu Dagnýjar Lóu.
Til hamingju með daginn elskan mín : )

Nokkrar myndir frá Florida.

27.Jan.
Oft voru einu "skýin", skilaboð um ást frelsarans skrifuð af trúuðum manni með flugréttindi.
29.Jan
Dagný ræðir málin við afa sinn.

Grannar.
30.jan
Í Universal garðinum sem var flottur en ekki fullkominn.

Eins og sönnum íslending sæmir var maður búinn að slá í gegn fljótlega og voru tímaritin fljót að sjá talent í sólbrunnum víkingi : )
31.jan
Svavar á teig, við vorum svo óheppnir að vera nánast eingöngu með vatnssækna bolta í pokanum þennan dag : )
Systkynin voru sátt í blíðunni.1.feb
Ahhhh....loksins fékk maður nýju kylfurnar og eina að auki fyrir M2.
2.feb
Þetta einkennilega kvikindi var eitthvað að spóka sig á golfvellinum.
4.feb
Þetta er hann Tim sem ásamt Bob voru með okkur tengdapabba í holli á hinum æðislega Legents golfvelli . Völlurinn var hannaður af Arnold Palmer og var hrikalega flottur.
Hér eru tengdapabbi og Bob að undirbúa pútt.
Eins og sönnum könum sæmir voru þeir félagar ekkert að reyna að leggja á sig að bera fram nöfnin okkar Svavars, heldur kölluðu Svavar "snoop dogg" og mig "fiddy cent" : )
Ég spurði Tim hin hressa af hverju hann segði "fiddy" en ekki fifty og útskýrði hann þá fyrir mér að blökkumenninir í Detroit þar sem hann á heima segja alltaf "fiddy".
Þeir félagar eru harðir á að koma á klakann í sumar eftir að ég sagði þeim frá því að það væri bjart allan sólarhringinn í júlí.
Þeir sögðust munu hringja í mig þegar þeir kæmu og tók ég vel í það, sagði þeim að "fiddy" væri í símaskránni : )



5.feb
Við Dagný fórum í göngutúr um hverfið, morguninn sem við fórum heim svona til að drekka í okkur síðustu geislana fyrir frostið.
Dagný er búinn að koma sér upp þessu fína myndabrosi : )

Og þannig var nú það.
Í heild frábær ferð sem setti næga sól í hjartað til að duga mér fram á sumarið.

6.2.08

Frost úr funa

Jamm við erum komin heim á klakann eftir flotta ferð í sólina.
Skýrsla kemur síðar.

2.2.08

Bíó: 10,000 BC (2008)



Roland Emmerich, maðurinn sem nauðgaði okkur með myndum eins og Independence Day (1996) og svo The Day After Tomorrow (2004) kemur enn eitt ruslið.
Ekki orð um það meir.

Einkunn 5/10