22.2.07

Bændur að brillera !

Einhver fáránlegasta auglýsing/tilkynning sem ég hef í lengri tíma séð var birt í Fréttablaðinu í dag, í henni var samtök kjúklinga og svínabænda að verja hátt verð á kjúklingum og svínakjöti með því að benda á þá staðreynd að íslensk heimili eru að borga talvert hærri upphæð í yfirdrátt en í kjúklinga og svínakjöt !
Nú...í alvöru, nú jæja þá er svosem auðvitað allt í lagi að borga svona mikið fyrir kjúllann og svínið !
Fávitar !
Og til að gera endanlega í brækurnar þá hafa bændasamtökin brotnað undan þrýstingi róttækra feminista og lokað fyrir aðgengi "klám þingsins hræðilega" á Hótel Sögu.
Maður veltir fyrir sér hversu miklir bisness menn bændur eru þessa dagana, þarna var mjög stór hópur á ferðinni og voru þess vegna háar fjárhæðir í boði.
Fávitar !
Þeir geta auðvitað huggað sig við að feministar eru að borga hærri upphæð í yfirdrátt en fyrir afurðir bænda.

Happy Gilmore


Svona á að fagna eftir allt kjaftæðið undanfarna daga : )

21.2.07

Vef-Þjóðviljinn............

..............tæklar í þessari grein mjög vel alla þessa "klámráðstefnu" umræðu og bendir á með flottum rökum hversu vitlaus þessi umræða er.

http://andriki.is/default.asp?art=19022007

20.2.07

Hvað !

Er það ekki alveg ljóst að við erum þjóð sem hefur þróast úr því að búa í torfkofum og erum orðin þjóð sem býr í steinsteyptum torfkofum þegar að mál málanna hjá stórþjóðinni eru :
Jude Law að fleka Höllu Vilhjálms !
Og svo hitt stórmálið, voru þetta mýs eða kartöflur sem sáust á gólfinu í Bónus í samantekt hjá Stöð 2 í gær !

Bara fyrir viku voru aðalmálin Breiðavíkur skandallinn og misnotkun á heyrnleysingjum !

Potato, potato !

18.2.07

Laaaaangskemmtilegasta bloggið þessa daganna er......

...............http://hugsadu.blog.is/blog/hugsadu/
Hér fer ofur feministinn Katrín Anna algerlega á kostum í baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna.
Og hvílíkur hvalreki sem þessi frétt um að hollenskir klámhundar ætli að fá sér að ríða á hóteli bændanna hefur verið fyrir málstaðinn !
Það er alger skyldu rúntur fyrir ykkur lesendur mína að smella á linkinn og lesa hvað Katrín og hennar kollegar hafa um málið að segja, og hvað þeir sem eru henni ekki alveg sammála hafa til málanna að leggja !

Eiríkur rauði.

Í gærkveld kom það í ljós hvert framlag okkar til söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva verður, og það er "Fæ aldrei nóg" flutt af Eiríki Hauks.
Ég er sjálfur mjög ánægður með þessi úrslit þótt þau hafi komið mér pínulítið á óvart, ég var nánast viss um að Heiða myndi vinna og hefði ég verið svo sem sáttur við það þótt að mér hafi fundist textinn svolítið kjánalegur, eins og hann hafi verið tekinn upp úr bók hjá nemanda á fyrsta ári í læknadeildinni.
Allavega er ég bara ánægður, besta lagið poppaði uppúr skítahaugnum sem keppnin var þetta árið og vann.

10.2.07

Öskubuska og glerskórinn !


Allir sem hafa lesið söguna um Öskubusku muna eftir leitinni sem prinsinn gerði að fæti þeim sem passaði í skóinn sem Öskubuska missti af fætinum á hlaupum á miðnætti þegar töfrar heilladísarinnar áttu að hverfa. Fullt af illkvittnum kellingum reyndu að troða sér í skóinn í þeirri von að vinna hjarta prinsins.
Svipað ástand virðist vera komið upp í þessu sorglega máli með skyndilegum dauða Anne Nicole Smith.
Eftir að stelpu ræfillinn lést frá 4 mánaða gamalli dóttur sinni hafa 3 kallar sprottið fram og segjast vera feður stúlkunar ólánsömu.
Hvað veldur ?
Kannski að föðurtilfinningin hafi óvænt brotist fram, en líklegt er að sú staðreynd að stúlkan litla erfir gríðarlegar fjárhæðir eftir skyndilegt fráfall móður sinnar hafi kveikt þennan skyndi áhuga á föðurhlutverkinu.
Fáránlega sorglegt mál allt saman og merkilegt hvernig að farsinn sem líf Anne Nicole var, skuli getað haldið áfram eftir hennar dauða.
Og ekki beint glæsileg byrjun á lífi dóttur hennar.

Bíó: Pan's Labyrinth (2006)


Leikst: Guillermo del Toro (Blade II. 2002) (Hellboy. 2004)
Aðalhl: Engin sem þú þekkir.

Myndin fjallar um stúlku sem flytur ásamt ófrískri móður sinni til herforingja sem er hið mesta illmenni og er með herflokk í sveitinni að berjast við andspyrnuhreifinguna undir stjórn Franco á Spáni árið 1944.
Ekki líður á löngu þangað til að stúlkan lendir í furðuheimi ævintýranna og allskonar mishuggulegir hlutir fara að gerast.

Mjög vel gerð mynd og vel leikinn, þrælflott ævintýramynd fyrir fullorðna og klárlega þess virði að sjá.

8/10

7.2.07

Skattalækkanir ?

Okkar háttvirti forsætistráðherra var rétt í þessu að tilkynna meiri skatta breytingar og sagði að "jákvæð reynsla Íslendinga af skattbreytingum á undanförnum árum styrki sig í þeirri trú, að ef við gegnið verði enn lengra í þessum efnum sé hægt að ná meiri árangri við að byggja hér upp öflug fyrirtæki sem aftur skili miklum skatttekjum"

Er farið að styttast í kosningar ?

4.2.07

Eurovision rusl

Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva er þekkt fyrir allt annað en að geta af sér perlur dægurtónlistar, en nú tekur steininn úr !
Það sem okkur hefur verið boðið uppá undanfarnar helgar er ekkert annað en rusl, hreinlega ekkert upptakandi af þessum lögum.
Þá er bara að vona að Sylvía Nótt hafi haft rétt fyrir sér þegar að hún sagði að lélegustu lögin séu líklegust til afreka í keppninni.
Mín spá er að eitt af eftirfarandi lögum verði okkar framlag 2007:

„Ég og heilinn minn"
Lag: Dr. Gunni og Ragnheiður Eiríksdóttir
Texti: Dr. Gunni
Flytjandi: Ragnheiður Eiríksdóttir

„Segðu mér"
Lag: Trausti Bjarnason.
Texti: Ragnheiður Bjarnadóttir.
Flytjandi: Jónsi

„Ég les í lófa þínum"
Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson.
Texti: Kristján Hreinsson.
Flytjandi: Eiríkur Hauksson