30.1.07

Baunastappa !


Sko, það fer rosalega í taugarnar á mér þessi helvítis hroki sem danir eru með þessa dagana, eins og það sé bara formsatriði að klára leikinn á móti okkur á HM í handbolta !
Þess vegna er algerlega nauðsynlegt að vinna baunana og helst stórt, tap er ekki á dagskrá !
En ef, já ef að illa fer hvað gerum við þá ?

Það sem við gerum er hið eina í stöðunni og nokkuð sem við íslendingar erum orðnir rosalega góðir í...........kaupum bara eitthvað sem helv.... baununum þykir óstjórnlega vænt um !

T.d. Lego Land eða Carlsberg verksmiðjunar !
Það væri snilldar hefnt !

Nú eða bara vinna leikinn !

27.1.07

Strákarnir okkar.

Núna rétt í þessu voru "strákarnir okkar" að tryggja sig í 8 liða úrslit á HM í handbolta, frábært hjá þeim.
En það er tvennt sem fer í taugarnar á mér við þetta mót:
1. Af hverju eru öll liðin í eins búningum? Bara sitthvor liturinn !
2. Hvernig stendur á því að alltaf þarf að setja eitthvert helvítis betl í gang hjá HSÍ í hvert skipti sem landsliðið er að spila ?
Hringdu í þetta númer og 1000 kr færast á símreikninginn þinn !
Er liðið ekki með styrktaraðila sem eru búnir að taka þjóðina í rassgatið árum og jafnvel áratugum saman ?
Aðal styrktaraðilar liðsins eru Kööööpthhhing (áður þekkt sem KB banki og þar áður sem Búnaðarbankinn) og Icelandair, hvort tveggja hafa skilað margmilljarða hagnaði með því að okra á okkur sauðsvörtum almúganum !
Og til að toppa þetta allt þá er ætlast til að maður hringi í eitthvað númer og smyrji þannig auka þúsara á símreikninginn, eins og hann sé ekki nógu helvíti dýr fyrir, og þar er enn eitt apparatið sem tekið hefur þjóðina í ósmurt árum og jafnvel áratugum saman, Síminn !

Friðurinn úti !


Eru ekki einhver lög sem banna fólki að eyða almanna fé í endalausar tilraunir til forsetakjörs ?
Ástþór ætlar að bjóða sig fram til forseta í a.m.k þriðja skipti og ef ég þekki lögin rétt þá á hver sá sem nær tiltöldum fjölda undirskrifta rétt á styrk frá ríkinu uppá nokkrar millur.
Ef að ekki eru til lög sem takmarka fjölda tilrauna til forseta þarf að setja þau strax !
Þessi maður er búinn með sénsana sína !

24.1.07

Hæðilegt F1 slys !


He he he......rosalega fyndið !

21.1.07

Bóndadags uppdate !

Í ljósi líflegra umræðna eftir síðasta innlegg þá er mér bæði ljúft og skylt að að koma því á framfæri að frúin beið auðvitað með góðgjörðirnar þangað til að bóndinn kæmi heim, þar var tekið á móti kallinum með blómum og fæði og fatnað í gjafaumbúðum.
Auðvitað var það vitað mál að það væri fyrir neðan virðingu frúarinnar að senda sms á þessum heilaga degi...........það gerir engin heilvita manneskja svoleiðis !

19.1.07

Bóndadagur ?

Í dag er bóndadagurinn, á þessum degi hefur hefðin verið að húsmæður og frúr gera x-tra vel við kallinn ýmist í mat eða öðrum góðgjörðum.
Ég hef þegar þetta er skrifað ekki svo mikið sem fengið sms frá frúnni og er þó sms eitt ömurlegasta form af samskiptum sem til er !
Gera þessar kellingar sér ekki grein fyrir að það styttist í kellingadaginn !
What goes around, comes around !

18.1.07

Innbrota alda !

Nú er innbrotaalda í Reykjavík auglýsir eitt af öryggisfyrirtækjum landsins og bæta svo við, ert þú með öryggiskerfi á þínu heimili?
Persónulega finnst mér svona hræðslu áróður óþolandi, þó svo að ég hafi lent í því að brotist hafi verið inn hjá mér fyrir nokkrum árum þá er ég ekki viss um að ég myndi fá mér öryggiskerfi á mitt heimili.
Mín reynsla er nefnilega sú að t.d. í vinnunni minni kemur öðruhvoru fyrir að "kerfið" fer í gang, t.d. þegar að skúringar fólkið gleymir sér og fer inn á svæði þar sem kerfið hefur verið sett á, og viðbragð öryggisfyrirtækissins sem á að vakta minn vinnustað er alveg handónýtt og bregst oftast ekki við fyrr en svo seint að sæmilega sprækir þjófar gætu hæglega hreinsað staðinn.
Fussumsvei !

17.1.07

Mannanafna nefnd.

Þessum lista "stal" ég af vinsælasta bloggi landsins http://www.saevarr.blog.is
Hér er listi yfir það nýjasta sem mannanafna nefnd hefur lagt blessun sína yfir.
Ég hef á tilfinningunni að íslenskupervertískir húmoristar sendi inn tillögur til nefndarinnar í þeim eina tilgangi að athuga hvort nefndin samþykki vitleysuna.
Og eins og sést á eftirfarandi lista tekst þeim það í mörgum tilfellum og sanna þar með að mannanafna nefnd er algerlega tilgangslaus og löngu búinn að missa tilverurétt sinn.
En skoðum þessi fallegu nöfn:

STÚLKNANÖFN


Eggrún Bogey
Oddfreyja Örbrún
Dúfa Snót
Ljótunn Hlökk
Himinbjörg Hind
Randalín Þrá
Baldey Blíða
Bóthildur Brák
Loftveig Vísa
Þúfa Þöll
Þjóðbjörg Þula
Stígheiður Stjarna
Skarpheiður Skuld
Kormlöð Þrá
Ægileif Hlökk
Venus Vígdögg
Hugljúf Ísmey
Ormheiður Pollý
Geirlöð Gytta
Niðbjörg Njóla

DRENGJANÖFN


Beinteinn Búri
Dufþakur Dreki
Hildiglúmur Bambi
Fengur Fífill
Gottsveinn Galdur
Grankell Safír
Kaktus Ylur
Þorgautur Þyrnir
Melkólmur Grani
Ljótur Ljósálfur
Náttmörður Neisti
Hlöðmundur Hrappur
Hraunar Grani
Ráðvarður Otur
Reginbaldur Rómeó
Kópur Kristall
Þangbrandur Þjálfi
Sigurlás Skefill
Þjóðbjörn Skuggi

Joke

Hvað var það síðasta sem Saddam Hussein sagði við bróður sinn ?

"verum í bandi"

15.1.07

Myndgæði takk !

mbl.is :
Írösk stjórnvöld staðfestu í morgun, að Barzan Ibrahim al-Tikriti og Awad Ahmed al-Bandar, fyrrum samverkamenn Saddams Husseins, hefðu verið teknir af lífi í dögum fyrir glæpi gegn mannkyninu. Sagði Ali al-Dabbagh, talsmaður írösku ríkisstjórnarinnar, að Barzan hefði verið afhöfðaður þegar hann var hengdur og sagði að það hefði verið „verk guðs."

Ég ætla rétt að vona að myndgæðin frá aftökunum verði meiri í þetta skiptið, rosalega þreytandi þessar gsm upptökur !

13.1.07

Bíó-Little Miss Sunshine (2006)


Leikstjórar eru Jonathan Dayton og Valerie Faris og hafa þau hjón aðallega leikstýrt tónlistar myndböndum og heimildamyndum um hljómsveitir.
Þessi mynd fjallar um fjölskyldu sem leggst í langt ferðalag til að koma dóttur sinni í fegurðarsamkeppni barna.
Ég skemmti mér alveg stórvel yfir þessari mynd, hún er þræl fyndinn og frumleg, og eins og í öllum velheppnuðum myndum eru þrælskemmtilegir karakterar í fjölskyldunni og var afinn í sérstöku uppáhaldi hjá mér.
Mæli með henni.

Einkunn: 8

Bíó-The Black Dahlia (2006)


Leikstjóri þessarar myndar er Brian De Palma og hefur hann gert nokkrar stórgóðar myndir, t.d:
Carrie (1976), Scarface (1983), Wise Guys (1986), The Untouchables (1987), Carlito's Way (1993).
Annsi glæsilegur listi ekki satt ?
Og þess vegna hélt ég að The Black Dahlia yrði .............ja......allavega miklu meira en hún reyndist vera.

Myndin er byggð á sönnum atburðum sem gerðust í Los Angeles í kringum 1940 og fjallar um tvo lögregluþjóna sem eru settir í að rannsaka morð á leikkonu sem finnst myrt og illa útleikinn á vegarkanti.

Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þessa mynd, hún er samhengislaus og og óspennandi, sett upp í spæjara stíl þar sem annar lögreglumaðurinn er að tala okkur í gegnum myndina og það var bara pirrandi.
Josh Hartnett er ömurlegur í aðalhlutverkinu, hann er einhverskonar sætabrauðsdrengur sem fm hlustendur elska.
Ef að Scarlett Johansson og Hilary Swank hefðu ekki verið í þessari mynd hefði ég sofnað mikið fyrr !

Einkunn: 5

5.1.07

Mestu heimskupör ársins 2006 verðlaunuð


Þetta er svo mikil snilld að ég kóperaði fréttina af mbl.is til að setja hér hjá mér.
Á sú ágæta vefsíða miklar þakkir skildar !
Rétt er að taka fram að ég reyndi eftir bestu getu að leiðrétta stafsetningarvillur.

Búið er að tilkynna vinningshafa í árlegri keppni um Darwin-verðlaunin svonefndu en þau eru veitt þeim, sem taldir eru hafa framið mestu heimskupörin á nýliðnu ári. Verðlaunahafar eru valdir í anda þróunarkenningar Darwins, sem gerir ráð fyrir því að þeir hæfustu lifi af. Þess vegna eru verðlaunin jafnan veitt fólki sem hefur með eigin heimskupörum séð til þess að erfðavísar þeirra berist ekki til næstu kynslóða.

Meðal sigurvegaranna nú er Brasilíumaður nokkur, sem reyndi að opna sprengju með því að aka bíl yfir hana nokkrum sinnum. Þessi aðferð dugði ekki og hann sótti þá sleggju og barði á sprengjuna. Nú gekk betur, sprengjan sprakk og lagði bílskúr Brasilíumannsins í rúst og eyðilagði 6 bíla í nágrenninu. Brasilíumaðurinn lifði þetta ekki af.

Ekki fór betur fyrir manni nokkrum í Belís, sem var að leika sér með flugdreka. Í stað venjulegs snæris festi maðurinn koparþráð í flugdrekann. Koparþráðurinn lenti á háspennulínu og þar með lauk þeirri flugferð. Það fylgir sögunni, að viðkomandi maður hafi verið rafvirki.

Tveir 21 árs gamlir Bandaríkjamenn þóttu einnig koma til greina. Þeir tróðu sér inn í stóran loftbelg, fullan af helíumi. Síðustu orð ungu mannanna voru sögð með málrómi Andrésar andar en skömmu síðar létust þeir af súrefnisskorti.

Prestur í Libreville í Gabon hélt því fram við söfnuð sinn, að hægt væri að ganga á vatni ef trúin væri nógu sterk. Eftir að hafa haldið þessu fram í innblásnum predikunum vildi presturinn sanna mál sitt, og lagði af stað gangandi yfir á nokkra. Presturinn kunni hins vegar ekki að synda og andlegur kraftur hans reyndist ekki vera nægur til að bæta það upp.

Sextugur Breti leitaði sér lækninga vegna húðsjúkdóms og á sjúkrahúsinu var hann smurður með kremi. Honum var sagt, að kremið væri eldfimt og því mætti hann alls ekki reykja því lítill neisti gæti kveikt í kreminu.

Það var bannað að reykja inni í sjúkrahúsinu en maðurinn varð brátt aðframkominn af reykleysi. Hann laumaðist því út á pall, sem tengdist brunastiga og kveikti sér í sígarettu. Allt gekk vel þar til hann kastaði sígarettunni á pallgólfið. Á leiðinni niður snerti stubburinn náttbuxnaskálm mannsins og þar sem nokkuð af kreminu hafði farið á náttbuxurnar stóð maðurinn brátt í björtu báli. Hann lést síðar af völdum brunasáranna.

2.1.07

Áramótaheitið 2007

Áramótaheitið mitt eru ekki ólíkt áramótaheitum allra síðustu ára, þ.e.a.s. allra áranna síðan ég var orðin nógu gamall til að átta mig á því að það þykir afskaplega flott að vera fitt: Ég ætla að hætta að éta eins og svín og stunda reglulega hreyfingu.
Þar sem þetta hefur verið áramótaheit, miðsumarsheit og bara venjulegt mánudagsheit oft og mörgum sinnum hlýtur slíkt heit að hafa farið í vaskinn í fjölmörg skipti hingað til. Þá er bara spurningin hvernig maður tæklar vandann í þetta skiptið. Fyrst af öllu ber að vara sig á gildrunum, en þær eru:

afmælisveislur - ca 5 til 8 sinnum á ári
páskar einu sinni á ári- ca 4 dagar
jól allur - desembermánuður
sumarfrí - einn mánuður á ári
föstudagar - 52 stykki
laugardagar - 52 stykki
árshátíðir - tvisvar á ári
þorrablót - tvisvar á ári

Það ber sem sagt að hafa varann á allt árið en sérstaklega þessa ca 178 daga sem mann langar sérstaklega mikið í nammi eða góðan mat.

Einnig þarf að passa sig á öllum þeim afsökunum sem til eru fyrir því að stunda ekki hreyfingu í dag:
Ég var að vinna svo lengi - 5 dagar í viku
Það er rigning úti - mjög oft
Það er hálka og/eða snjór - mun sjaldnar
Það er alltof gott veður - mjög sjaldan
Ég nenni ekki - frekar oft
Ég var að borða - nokkrum sinnum á dag

Svo ber að varast að gera samning við sjálfan sig:

Ég hreyfi mig bara á morgun og hinn í staðinn fyrir að hreyfa mig í dag.
Ég borða bara þeim mun minna á morgun.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja vikuna (oft á miðvikudegi). Ég byrja bara á mánudaginn.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja mánuðinn (oft fyrir fimmtánda). Ég byrja bara í næsta mánuði.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja árið (yfirleitt ekki fyrr en í nóvembar, er nokkuð bjartsýn týpa). Ég byrja bara á næsta ári.

Árið 2007 verður sem sagt árið sem ég hætti að vera sjálfur mér og öllum í kringum mig til háborinnar skammar !

1.1.07

Skaupið 2006

Er hægt að vera með blogg og ekki kommenta á skaupið ?
Nei, ekki sjéns.
Ég ætla ekki að fara útí hversu skrýtin áhrif skaupið hefur á fólk og hversu erfitt er að gera öllum til hæfis, ég til dæmis er sáttur við öll þau skaup sem Spaugstofan sér ekki um.
Þetta skaup í gærkveld fannst mér bara ansi gott, fattaði ekki alveg alla brandarana en það er allt í lagi.
Ég hló mig t.d. alveg máttlausan þegar að Jón Gnarr kom inn í Heilsuhúsið og spurði Þorstein Gunnarsson í gervi heiladauðrar grænmetis ætu, hvort hann ætti ólívur............ha.......ólívur Ragnar Grímson..........djöfull fannst mér þetta fyndið !
Og fullt af öðrum atriðum sem ég get ekki talið upp vegna minnisleysis (nei smakkaði ekki dropa fyrr en 15 mín í 12)

Það mætti svo segja mér að aðdáendur spaugstofunar hafi sofnað fúlir en alveg er mér slétt sama um það þeir geta huggað sig við að þau leiðindi hefjast aftur von bráðar, mér til ævarandi angistar og hægðatregðu !

Sem sagt, fínasta skaup og væri alveg til í að sjá það aftur..........það ætti reyndar að vera skylda hjá Ruv að sýna skaupið aftur á nýársdag.

Er þetta ekki bara geðveiki ?

Það hlýtur að vera eitthvað meiriháttar að landsmönnum þegar kemur að flugeldum !
Í gær gamalársdag var látlaust verið skjóta upp frá því að ganga kl 18 og fram á þriðja tíma nýs árs, með smá hléi rétt á meðan að skaupið var sýnt.
Það er eitt að hafa gaman að því að skjóta upp rakettur og kveikja í kökum eða að standa í þessu botnlausa helvítis rugli sem þetta er orðið, en auðvitað eru ekki allir svona ruglaðir...nein nei alls ekki, sumir láta sé nægja að freta úr fjölskyldupakkanum sem keyptur var og teljast því að mínu mati nokkuð heilbrigðir, en svo eru það þeir fjölmörgu sem ættu bara að láta loka sig inni um áramótin !
Margir eru að eyða fleiri hundruðum þúsunda í flugelda þó svo að líklega séu laaangflestir að spreða nokkrum tugum í stuðið.
Persónulega var mér farið að líða illa eftir að hafa verið búin að hlusta á sprengingar og lætin í nokkra klukkutíma, þetta getur ekki verið eðlilegt. Svo er það eins og að Íslendingar gangist upp í að gera sem mest úr þessu, eins og það sé töff að að vera fáviti sem eyðir öllum þessum peningum fyrir nokkura sekúnda ljósashow, útlendingar eru farnir að steyma til landsins fyrir áramót til að verða vitni að geðveikinni og það æsir okkur bara í að sprengja meira !
Í kvöls byrjar svo ballið aftur, þo líklega bara brot af gærkveldinu og svo enn einu sinni 6 janúar !

Djöfull er ég feginn að vera geðveikur á öðrum sviðum.