29.11.05

Pæling


Stöð 2 er búin að vera að kynna sína stórkostlegu (að eigin sögn) desember dagskrá núna undanfarið.
Þar eru á meðal þættirnir Eldsnöggt með Jóa Fel, og er hann kynntur sem vinsælasti sjónvarpskokkur landsins.
Þá fór ég að pæla, er Jói Fel vinsælasti sjónvarpskokkur landsins, eða er hann EINI sjónvarpskokkur landsins ?
Hummm....pæling : )


Satan.

Beer Server


Svona eigar allir að eiga !


Satan.

27.11.05

Sigur Ros TAKK !


Úff hvað getur maður sagt eftir svona tónleika ?
Ég var að koma heim af tónleikum Sigur Rosar í Laugardalshöll, og er í hálfgerðri vímu....nei ég fékk mér ekkert hugvíkkandi á tónleikunum nema smá bjór, þannig að ekki var það sú víma sem ég finn fyrir.
Líklegra er að það séu bara þessir snillingar í Sigur Ros sem hafa þessi áhrif á mann.
Þeir spiluðu í u.þ.b. 2 og hálfan tíma og misstu ekki takið á manni allan tímann, tóku lög af síðustu þremur plötum sínum og þó svo að ég geti ekki nafngreint helminginn af þeim þá get ég nefnt að af Ágætis Byrjun voru tekinn lögin: Ný Batterí, Viðrar vel Til Loftárása og Olsen Olsen, af nýju plötunni Takk voru auðvitað flest lögin og voru þau meðal annars: Hoppípolla, Glósóli, já og líklega bara restin af þeirri plötu og af plötunni ( ) man ég bara eftir lagi númer eitt.
Fyrir tónleikana hitaði stúlkna strengjasveitin Amina upp tónleikagesti sem voru víst eitthvað yfir 5000 talsins, en þó ekki alveg uppselt sem ég er frekar hissa á, einnig voru hljómsveitinni til aðstoðar 9 manna blástursleikarar og svo tóku þær Amina stúlkur stóran þátt í flutningi litlu álfadrengjanna.
Þá verður að minnast á einfaldan en áhrifaríkan þátt ljósameistara þessara tónleika, en erfitt er að lýsa því með orðum, en þar var vel að verki staðið og átti stóran þátt í þeirri tilfinningu sem hríslaðist um mann alla tónleikana.
Sándið var gríðarlega gott og gerði tónlist drengjanna góð skil þar sem lögin eru allt frá angurværum rólegheitum og yfir í þungt og kraftmikið dúndur.

Það er sem sagt alveg á hreinu að ég er gríðarlega ánægður með kvöldið og enn sannfærðari að hér eru snillingar á ferð og að lokum getur maður bara sagt frá innstu hjartarótum.......TAKK.


Satan.

Sigur Ros

Sigur rosar tónleikar eftir 2 tíma : )
Skýrsla á morgun....istuuujúúú.....istjúúuuuúúú......syngja með !


Satan.

26.11.05

Batman Begins


Leikstjóri er Christopher Nolan, Insomnia (2002) og Memento (2000)
Í aðal eru : Christian Bale, Michael Caine, Liam Neeson, Katie Holmes og Gary Oldman.

Í þessari mynd er farið ofan í það hvernig Blaki varð til og hvað mótaði hann.
Þessi mynd er mikið myrkari er allar hinar myndirnar um Blaka og ekkert verið að rembast við að vera fyndinn með vonlænerum frá bjánalegum karakterum eins og the Riddler (Jim Carrey).

Þessi mynd er án nokkurns vafa sú besta í seríunni og er það aðeins fyrsta myndin sem kemst nálægt þessari, og þá helst vegna frammistöðu Jack´s Nicholsonar.

7/10 í einkunn.


Satan.

24.11.05

Hvað hétu þeir fyrst ?

Áður hljóvsveit "meikar það" eru þær oft búnar að reyna undir öðru nafni, hér eru nokkur dæmi um fyrri nöfn.

Coldplay - Starfish
Radiohead - On A Friday
Sigur Ros - Victory Ros
Blur - Seymour
The Beatles - The Quarry Men og Johnny & the Moondogs
The Rolling Stones - The Stones
Madness - The Invaders
Pearl Jam - Temple Of The Dog
Stone Temple Pilots - Swing
Dire Straits - Café Racers
Queen - Smile


Satan - Gabríel engill.

22.11.05

Jólagjöfin í ár er.........


...án nokkurs vafa gjafabréf í Bónus !
Þetta framtak þeirra er endalaus snilld og frábært að einhver lágvöruverðs verzlun skuli telja sig svo frábæra að að það hljóti að vera eftirsóknarvert af fá svona lagað í jólapakkanum, eða skulum við segja jólaumslaginu.

Bónus, þeir líta eins út og svín en eru með sjálfsálitið á hreinu.


Satan.

21.11.05

40 year old virgin


Í aðal eru : Steve Carell, Catherine Keener, Paul Rudd, Romany Malco, Seth Rogen.
Leikarinn Steve Carell (f.1963) sló óvænt í gegn í myndinni Bruce Almighty þar sem hann stal nánast senunni frá Jim Carrey.
Síðan þá hefur hann leikið í : The Office þáttunum sem voru endurgerðir fyrir USA, Anchorman: The Legend of Ron Burgundy (2004), Melinda and Melinda eftir Woody Allen og í myndinni Bewitched.
Og núna er hann að leika eða að fara að leika í a.m.k 6 myndum sem væntanlegar eru 2006 - 2007
Þannig að hann er í góðum málum.
En 40 ára hreinsveinninn fjallar um Andy sem vinnur í raftækjaverslun og nýtur þar félagskapar nokkurra hressandi félaga, sem gera allt sem þeir geta til að redda kallinum þegar að það uppgötvast að Andy er "ónelgdur".
Þrátt fyrir að vera formúlumynd þá er hún helv... vel heppnuð og fyndinn.
Einkunn 7/10


Satan.

19.11.05

Af hverju

Nú er ég búinn að vera með ælupest og hita s.l. 3 daga, reyndar var ælan bara fyrsta daginn sem betur fer.
En í mókinu sem ég var í á fimmtudagskveld eftir að vera búinn að vera með hausinn ofaní klósettinu nokkrum sinnum fór ég að pæla, hvernig stendur á því að maður fær aldrei ælupest þegar að klósettið hefur nýlega verið þrifið ?


Satan.

Spluknunýr

Í gærkveld kom Friðrik Gauti í heiminn og óska ég honum og hans fólki til hamingju með það, hjartanlega velkominn frændi !



Satan.

15.11.05

NFS

Samkvæmt Blaðinu munu allir sem eru með Digital Ísland afruglara þurfa að borga 500 króna gjald fyrir afruglaran !
En þetta ku vera ekkert annað en dulbúið gjald fyrir aðgang að hinni nýju fréttastöð NFS, sem á samt að vera ókeypis fyrir alla sem eru með myndlykil fyrir Digital Ísland !
Scnillingar !
365 sökkar,
Blaðið rúllar !


Satan.

13.11.05

Þreyttir og ferskir





Sjónvarpsefni er misgott og það sem manni finnst velheppnað eldist svo misvel.
Dæmi um sjónvarpsþætti sem ég var "húkkt" á en er ekki lengur er : Alias, E.R. og Survivor enda eru þessir þættir fyrir löngu búnir að fara hringinn í söguþræði og eru orðnir lapþunnir (ég veit að það er enginn söguþráður í Survivor).
Svo eru það þættirnir sem eldast vel, eins og : Simpsons, That 70´s show, og King of Queens.
Nú svo eru það þættirnir sem að aldrei urðu neitt hjá mér : Örninn= fáránlega yfirhæpaður þáttur um bjánalegan löggukall ættaðan úr Vestmannaeyjum, Kalla kaffi = gvuð minn rassskellandi hverzu lélegt er þetta bara !
Svo nenni ég ekki að eyða orðum á Spaugstofuna !

11.11.05

Ekki láta útlitið blekkja þig


Bush leggur VR hjálparhönd í baráttunni !


Satan.

10.11.05

8.11.05

73

Í dag var verði á bensíni breitt í 73 skipti á þessu ári samkvæmt heimasíðu Olíufélagsins !
Ég segi að áður en að árinu er lokið verði búið að breyta 81 sinni.........ha.......einhver,einhver ?


Satan.

7.11.05

Laaangbestir !


Allt er nú til, ég hafði ekki hugmynd um að það væri eitthvað til sem héti International Federation of Football History and Statistics ! En það er nú samt til og ekki bara það heldur hafa þeir komist að því eftir mikla útreikninga að Liverpool sé besta fótbolta lið í heimi !
Ehhem...um leið og þú hættir að hlæja skaltu skoða listann.
Smelltu á myndina til að stækka.
Er ekki lífið magnað ?


Satan.

Ég sigraðist á anorexiu : )

5.11.05

Blaðið


Ég skal alveg játa það strax, að þegar Blaðið kom ókeypis fyrst inn um lúguna hjá mér var ég ekkert sérstaklega imponeraður(flott orð). Í dag hefur það svolítið breyst, mér finnst nefnilega vera orðið skemmtilega áberandi að Blaðið er "frjálst og óháð" blað.
Svo er í Blaðinu er snilldar teiknimynda sería Íslensk, svona í and Sigmund í Mogganum.
Þetta tvennt er það sem gerið það að verkum að Blaðið fer ekki lengur beint í tunnuna !
Tjekk itt át !



Satan.

2.11.05

http://www.deathclock.com/


Samkvæmt þessari hárnákvæmu dauðaklukku mun ég drepast 22 feb 2042 71 árs að aldri !
Hvaða andskotans.......þetta getur ekki verið rétt !
O jæja, er þá ekki bezt að byrja lifa lífinu til fullnustu ?
Death Clock: The Internet's friendly reminder that life is slipping away...



Satan.

1.11.05

Bewitched


Í aðal eru : Will Ferrell og Nicole Kidman
Leikstjórn : Nore Ephron, á að baki : Lucky Numbers (2000) You've Got Mail (1998) Michael (1996) Mixed Nuts (1994)
Sleepless in Seattle (1993)
Þessi mynd er bara svona bærilega áhorfanleg, meira að segja Will Ferrell nær ekki að bjarga frá meðalmoði.
Einkunn 5/10


Satan.